Eyjalistinn gagnrýnir að hafa ekki verið boðaður til fundar með forsætisráðherra
Sjálfstæðisflokkurinn segir fundinn hafa verið að frumkvæði skrifstofu forsætisráðherra en ekki á vegum Vestmannaeyjabæjar
Málið var tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Myndin er frá fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Ágreiningur skapaðist á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja um heimsókn forsætisráðherra til Vestmannaeyja þann 26. júní síðastliðinn. Bæjarfulltrúar Eyjalistans gagnrýna að hafa ekki verið boðaðir á fund sem haldinn var í heimsókninni en bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja fundinn hafa verið að frumkvæði skrifstofu forsætisráðherra en ekki á vegum Vestmannaeyjabæjar.

Málið kom upp við yfirferð bæjarstjóra á helstu verkefnum sveitarfélagsins. Þar var meðal annars farið yfir fjárhagsáætlunarvinnu, vinnu við atvinnustefnu Vestmannaeyjabæjar, stöðu og tímasetningar vegna útlagningar almannavarnalagnar NSL-4, uppbyggingu hjá Laxey, Goslokahátíðina og fund fulltrúa Vestmannaeyjabæjar með forsætisráðherra þar sem meðal annars var rætt um atvinnuuppbyggingu í Eyjum og fyrirhugaðan stórskipakant.

Eyjalistinn: Allir kjörnir fulltrúar eigi að fá að sitja fundi sem þessa

Í bókun sem lögð var fram á fundinum segja bæjarfulltrúar Eyjalistans, Anton Örn Björnsson og Arndís María Kjartansdóttir, að þeir lýsi yfir miklum vonbrigðum með það vinnulag sem viðhaft var við heimsókn forsætisráðherra.

Þau segja að fulltrúar listans hafi ekki verið boðaðir til fundarins og telja að það stangist á við grundvallarsjónarmið um lýðræðislega stjórnsýslu og góða stjórnarhætti.

„Það er grundvallaratriði í lýðræðislegri stjórnsýslu og góðum stjórnunarháttum að allir kjörnir fulltrúar í bæjarstjórn, óháð meiri- eða minnihlutastöðu, fái jöfn tækifæri til að koma sjónarmiðum samfélagsins á framfæri þegar æðstu ráðamenn þjóðarinnar sækja okkur heim,“ segir meðal annars í bókun Eyjalistans.

Sjálfstæðisflokkurinn: Fundurinn var að frumkvæði skrifstofu forsætisráðherra

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins svöruðu gagnrýninni með sérstakri bókun. Þar kemur fram að skrifstofa forsætisráðherra hafi óskað eftir fundi með bæjarstjóra Vestmannaeyja vegna atvinnustefnu fyrir Ísland. Þá segir að þegar ráðamenn komi með skömmum fyrirvara taki formaður bæjarráðs, forseti bæjarstjórnar og formaður framkvæmda- og hafnarráðs þátt í fundinum.

Í bókuninni er bent á að á fundinum hafi meðal annars verið fjallað um fyrirhugaðan stórskipakant, Eyjagöng og uppbyggingu hjá Laxey. Jafnframt segir að þegar fundir séu á vegum Vestmannaeyjabæjar séu allir bæjarfulltrúar sérstaklega boðaðir.

Að lokum segja bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins að þeim þyki leitt að þetta hafi verið upplifun Eyjalistans.

Nýjustu fréttir

Vinnslustöðin, Huginn og VÍS sýknuð í vatnslagnarmálinu
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Eyjalistinn gagnrýnir að hafa ekki verið boðaður til fundar með forsætisráðherra
Vinnupása skilaði vinning
Patr!k með óopinbert Þjóðhátíðarlag
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Alfreð Týr
Sólarlag hljómar í Eldheimum á Goslokum
Lokasprettur í forsölu Þjóðhátíðarmiða fyrir félagsmenn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.