ÍBV vann Val í Goslokaleik
Úr leik ÍBV og Stjörnunnar. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV vann sterkan 1-0 heimasigur á Val í 13. umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag. 

Ekki var mikið um fína drætti í fyrri hálfleik og var staðan 0-0 í hálfleik. Eyjamenn komu nokkuð sterkir út í síðari hálfleikinn og náðu forystunni á 58. mínútu leiksins. Bjarki Björn Gunnarsson átti þá fyrirgjöf inn á teig Valsmanna á Alex Frey Hilmarsson sem tók eina snertingu og kláraði svo örugglega framhjá Frederik Schram, markverði Valsmanna. 

Nokkrum mínútum síðar fékk fyrirliði Vals, Hólmar Örn Eyjólfsson, að líta rauða spjaldið eftir hafa hrint Alex Frey Hilmarssyni inn á teig Eyjamanna. Valsmenn því einum færri frá 65. mínútu leiksins. 

Omar Sowe fékk gott færi, stundarfjórðungi fyrir leikslok, til að koma Eyjamönnum í 2-0 en markvörður Vals varði frábærlega frá honum. 

Tryggvi Hrafn Haraldsson komst næst því að jafna fyrir Valsmenn undir lok leiks þegar hann slapp einn í gegn en skot hans beint á Ara i Haraldsstovu Petersen. Lokatölur leiksins 1-0 og Eyjamenn taplausir í sex leikjum í röð.

Eftir leikinn eru Eyjamenn komnir í sjöunda sæti deildarinnar með 15 stig. Valsmenn eru í fimmta sæti með 19 stig.

Úrslit dagsins:

ÍBV 1 – 0 Valur

1-0 Alex Freyr Hilmarsson (’58 )

ÍA 1 – 2 Breiðablik

 

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.