Ein athyglisverðasta listasýning Goslokahátíðar var sýning Hlyns Ólafssonar í Akóges þar sem gestum gafst kostur á að rifja upp sögu Vestmannaeyja í gegnum ljósmyndir, myndbönd, frímerkjahönnun og málverk. Sýningin sameinaði á áhrifaríkan hátt menningarsögu Eyjanna og persónulega listsköpun Hlyns. Stærsti hluti sýningarinnar var helgaður gömlum ljósmyndum sem Hlynur hefur safnað og unnið með í gegnum árin. Myndirnar sýndu daglegt líf í Vestmannaeyjum, mannlíf, atvinnulíf, götumyndir og samfélagið eins og það var á liðnum áratugum.
Margir gestir stöldruðu lengi við myndirnar og rifjuðu upp eigin minningar, en um leið gaf sýningin yngri kynslóðinni tækifæri til að kynnast sögu bæjarins á lifandi og myndrænan hátt.

Þjóðhátíð skipaði veglegan sess á sýningunni. Þar voru sýndar fjölmargar ljósmyndir frá hátíðinni í gegnum tíðina, auk myndbands sem vakti athygli gesta. Þar mátti sjá ógleymanleg augnablik frá stærstu útihátíð landsins og fylgjast með þróun hennar í gegnum árin. Á sýningunni voru einnig sýnishorn af þeim frímerkjum sem Hlynur hefur hannað fyrir Íslandspóst. Þau bera skýrt vitni um vandaða grafíska hönnun og þá nákvæmni sem hefur einkennt störf hans um áratugaskeið. Hlynur hefur auk þess komið að fjölmörgum verkefnum á sviði grafískrar hönnunar, merkjahönnunar, útgáfu og myndskreytinga. Hann hefur hannað fjölda merkja og tákna sem tengjast Vestmannaeyjum og íslenskri menningu.

Hlynur hóf nýlega að mála á ný eftir um fjögurra áratuga hlé, meðal annars fyrir hvatningu eiginkonu sinnar, Þórdísar Magnúsdóttur, sem jafnan var kölluð Dísa og lést fyrir fáum árum. Öll málverkin á sýningunni urðu til á síðasta ári og eru hluti af uppgjöri hans við æskuna í Vestmannaeyjum, eldgosið 1973 og þá einstöku reynslu sem hann varð fyrir þegar hann var á björgunarvakt með Hjálparsveit skáta gosnóttina.
Verkin eru persónuleg og áhrifamikil og sýna aðra hlið á listamanninum en margir þekkja. Þar fá tilfinningar, minningar og lífsreynsla að njóta sín á striganum.

Hlynur Ólafsson fæddist í Vestmannaeyjum 12. ágúst 1956 og ólst þar upp. Fyrstu spor hans í myndlist voru á kvöldnámskeiðum í Arnardrangi hjá myndlistahópi undir stjórn Páls Steingrímssonar. Síðar sótti hann ljósmyndanámskeið og starfaði einnig við kennslu á slíkum námskeiðum. Hann nam grafíska hönnun við Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1984 til1988, eftir að hafa áður starfað hjá Flugfélagi Íslands og Flugleiðum.
Að námi loknu vann hann hjá auglýsingastofum áður en hann stofnaði eigið hönnunarfyrirtæki. Á löngum ferli hefur hann unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði grafískrar hönnunar, myndskreytinga og útgáfu, auk þess að hanna fjölda frímerkja fyrir Íslandspóst.
Þótt Hlynur hafi búið um árabil á höfuðborgarsvæðinu hefur hann ávallt haldið sterkum tengslum við heimabæ sinn. Það endurspeglaðist vel á sýningunni í Akóges þar sem Vestmannaeyjar voru rauði þráðurinn í gegnum ljósmyndir, hönnunarverk og málverk.