Landsliðið og Pressuliðið léku sinn árlega leik á TM mótinu sem fór fram á Hásteinsvelli í sól og blíðu. Leiknum lauk með 4-7 sigri Pressuliðsins. Stelpurnar sýndu frábær tilþrif í leiknum og voru algjörlega til fyrirmyndar. Fulltrúar ÍBV í Landsliðinu svöruðu nokkrum spurningum Eyjafrétta um mótið og fleira.
Nafn? Ingunn Ása Fannarsdóttir.
Aldur? Verð tólf ára í ágúst.
Fjölskylduhagir? Foreldrar mínir heita Birgit Ósk og Fannar veigar og svo á ég tvíburabróðir sem heitir Veigar Funi.
Hvernig var að spila landsleik TM mótsins? Það var mjög gaman að vera valin í landsliðið, að fá tækifæri til að spila fyrir Guðbjörgu Sillu og Kolfinnu Rán og kynnast öllum stelpunum sem voru með mér í liði.
Hvernig gekk á mótinu? Fyrsta daginn gekk mjög vel, annar dagurinn hefði getað farið betur og síðasti dagurinn gekk líka vel. Ég er mjög sátt við okkar frammistöðu.
Hvað stóð upp úr? Það sem mér finnst standa upp úr er gott veður, að vera með vinkonum og að vera valin í landsliðið.
Hvert er stefnan tekin í fótboltanum? Bara að halda áfram að leggja mig fram og vonandi komast í Íslenska landsliðið.
Uppáhalds knattspyrnumaður/kona? Thelma Karen og Sveindís Jane.
Eitthvað að lokum? Ég vil bara þakka stelpunum sem voru með mér í liði fyrir frábært mót og aldrei gefast upp.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.