Viðgerð á rafmótor Herjólfs IV er nú lokið og stefnir ferjan til Þorlákshafnar aðfaranótt mánudags þar sem mótorinn verður settur í skipið.
Samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi ohf. er gert ráð fyrir að uppsetning mótorsins taki allt að fjóra sólarhringa. Á meðan verður Herjólfur úr áætlun en ferjan Baldur sinnir átta ferðum á dag milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar.
Þegar uppsetningu mótorsins er lokið mun Herjólfur taka aftur við siglingum eins fljótt og auðið er. Þá verður áfram siglt samkvæmt átta ferða áætlun til og með 23. ágúst.
Baldur snýr aftur til siglinga á Breiðafirði um leið og Herjólfur hefur hafið áætlunarsiglingar á ný.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.