Þjónustuþegum í lengdri viðveru fyrir fötluð börn á aldrinum 10 til 16/18 ára í Vestmannaeyjum mun fjölga um helming í haust. Því er þörf á auknu fjármagni til að mæta aukinni þjónustuþörf.
Þetta kom fram á síðasta fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs Vestmannaeyja þar sem sviðsstjóri fór yfir stöðu mála.
Ráðið samþykkti að þörf væri á auknu fjármagni til reksturs lengdrar viðveru fyrir fötluð börn, enda um lögbundna þjónustu að ræða. Sviðsstjóra var falið að vísa erindinu til bæjarráðs með ósk um aukna fjárheimild.