Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ
Tvö skemmtiferðaskip lágu við Heimaey í morgun og settu farþegar þeirra svip sinn á bæjarlífið
Tvö skemmtiferðaskip lágu í innsiglingunni við Heimaey í morgun. Farþegar þeirra settu snemma svip sinn á bæjarlífið. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson.

Það var óvenju mikið líf í Vestmannaeyjabæ snemma í morgun þegar farþegar tveggja skemmtiferðaskipa tóku að streyma í land.

Á níunda tímanum var þegar hafin ferjun farþega frá skipunum, sem lágu í Klettsvík annars vegar og hitt var rétt fyrir utan klettsnefið. Þaðan héldu ferðamenn ýmist fótgangandi af stað til að kynna sér bæinn eða komu sér fyrir í hópferðabílum til að skoða helstu náttúruperlur Heimaeyjar.

Á tíunda tímanum iðaði miðbærinn af lífi, sem verður að teljast fremur óvenjuleg sjón svo snemma á sunnudagsmorgni. Ferðamenn voru víða á gangi um bæinn og aðrir nýttu tækifærið til að gæða sér á kaffi og bakkelsi í bakaríum bæjarins.

Veðrið lék við gesti og heimamenn og innsiglingin skartaði sínu fegursta. Óskar Pétur Friðriksson var á ferðinni í morgun og myndaði skipin tvö.

Nýjustu fréttir

Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ
Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum
Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.