Mikilvægum áfanga í lagningu nýrrar vatnsleiðslu milli lands og Vestmannaeyja var náð í kvöld þegar endi leiðslunnar var dreginn upp í fjöru á Landeyjasandi eftir að sterkur straumur hafði tafið verkið.
Mikill straumur tafði framkvæmdina í gær en um klukkan tíu í kvöld tókst að koma enda nýju vatnsleiðslunnar milli Vestmannaeyja og lands upp í fjöru á Landeyjasandi.
Lagning hófst í fyrrakvöld þegar lagningarskipið Seven Navica lét úr höfn í Vestmannaeyjum. Björgunarbáturinn Þór fylgdi skipinu en hlutverk áhafnarinnar var að koma enda leiðslunnar í land. Sterkur straumur kom í veg fyrir að það tækist í gær en tafði ekki sjálfa lagninguna. Seven Navica hélt áfram að leggja lögnina á meðan hún flaut á belgjum.
Landtakan var vel undirbúin. Þór var með 500 metra dráttarlínu úr landi. Þegar straumurinn lægði við fallaskiptin var endi leiðslunnar tengdur við línuna og jarðýta dró hana upp í fjöruna á Landeyjasandi.
Veður var með besta móti, sléttur sjór og góðar aðstæður til verksins. Straumurinn reyndist því eina verulega hindrunin. Nýja vatnslögnin er 12,7 kílómetra löng og mun stórbæta vatnsöryggi Vestmannaeyja. Nú er aðeins ein af þremur eldri vatnslögnum milli lands og Eyja í nothæfu ástandi en hinar tvær eru orðnar ónýtar.
