Vestmannaeyjabær telur að um altjón á nýju almannavarnarlögninni NSL-4 sé að ræða. Þrátt fyrir það hefur verið ákveðið að ljúka útlagningu hennar til að lágmarka frekara tjón og kostnað. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu Vestmannaeyjabæjar.
Lögnin skemmdist í atviki við útlagningu aðfaranótt sunnudagsins 9. ágúst og var framkvæmdin stöðvuð. Að sögn bæjaryfirvalda er talið að um altjón á lögninni sé að ræða.
Engu að síður hefur verið ákveðið að halda áfram og ljúka útlagningunni í þeirri von að hægt verði að nýta lögnina að einhverju marki. Í samskiptum við verktakann Subsea 7 hefur komið fram að það sé skynsamlegasta skrefið á þessum tímapunkti til að lágmarka frekara tjón og kostnað.
Vinnan hefst þó ekki að nýju fyrr en uppfært áhættumat og önnur nauðsynleg skjöl hafa verið samþykkt. Er það gert til að tryggja öryggi við framhald framkvæmdarinnar.
Vestmannaeyjabær leggur áherslu á að ákvörðunin um að ljúka útlagningunni feli ekki í sér viðurkenningu sveitarfélagsins á ábyrgð vegna atviksins eða tjónsins. Öll réttindi bæjarins séu óskert og tryggingamál vegna tjónsins fari áfram sinn eðlilega farveg.
Ekki kemur fram hvenær útlagning hefst að nýju eða hversu stóran hluta lagnarinnar mögulegt gæti reynst að nýta.