Kvennalið ÍBV í fótbolta hefur fengið liðstyrk fyrir lokakaflann í Bestu deildinni en Ágústa María Valtýsdóttir er komin til liðsins á láni frá Val, út tímabilið. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum.
Ágústa er fædd árið 2008 og er uppalin hjá Val. Hún hefur undanfarin tvö ár spilað með meistararaflokki Vals. Hún á að baki 18 leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Ágústa lék með ÍBV árið 2024 í Lengjudeildinni . Þá spilaði hún átta leiki og skoraði í þeim þrjú mörk. Hún er nú þegar búin að leika fjóra leiki með ÍBV á þessu tímabili og skoraði sitt fyrsta mark fyrir liðið gegn Grindavík/Njarðvík í síðustu umferð.