Fyrsta Aglow-samvera haustsins í kvöld
Guðrún Erlingsdóttir verður gestur kvöldsins.

Fyrsta Aglow-samvera haustsins verður í Safnaðarheimili Landakirkju í kvöld, miðvikudaginn 2. september, kl. 19.30.

Guðrún Erlingsdóttir verður gestur kvöldsins, en hún bjó um árabil í Vestmannaeyjum og starfaði með Aglow. Guðrún leikur á gítar og samdi mörg lög og texta á þeim tíma. Eftir að hún flutti frá Eyjum hélt hún áfram að sækja Aglow-samverur og voru flest laganna frumflutt á samverum Aglow á höfuðborgarsvæðinu.

Lög og textar Guðrúnar komu út í sumar, bæði á plötu og geisladiski. Hún hélt tónleika í Vestmannaeyjum um goslokahelgina en þar sem margar Aglow-konur komust ekki á tónleikana þótti tilvalið að fá hana sem gest á fyrsta fundi haustsins.

Guðrún mun flytja hugvekju, syngja og leika nokkur lög. Hún verður einnig með plötur og geisladiska til sölu.

Aglow í Eyjum í 36 ár

Fyrsti Aglow-fundurinn í Vestmannaeyjum var haldinn 2. september 1990 og fagnar starfið því 36 ára afmæli í dag. Allar konur eru velkomnar á samveruna.

Aglow þýðir „glóandi“ eða „brennandi“ og vísar til orða í Rómverjabréfinu 12:11:  „Verið ekki hálfvolg í áhuganum, verið brennandi í andanum. Þjónið Drottni.“

Aglow-helgi verður einnig haldin í Skálholtsbúðum í október. Þar gefst konum víða að af landinu tækifæri til að hittast, njóta fræðslu og eiga samfélag saman. Nánari upplýsingar verða auglýstar þegar nær dregur.

Aglow-fundir veturinn 2026–2027

Fundirnir verða haldnir 2. september, 7. október, 4. nóvember og 2. desember, þegar jólafundurinn fer fram. Á nýju ári verða fundir 6. janúar, 3. febrúar, 3. mars, 7. apríl og 5. maí.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.