H-verslun stendur fyrir hlaupi í Eyjum n.k. laugardag (12. september) og þetta er í annað sinn sem verslunin stendur fyrir hlaupinu hér í Eyjum.
Hlaupið hefst við H-pop up verslunina að Heiðarvegi 9b klukkan 12 og er fimm kílómetra langt. Minna Björk Ágústsdóttir, mun leiða hópinn.
Ekki þarf að skrá sig fyrirfram og er þátttakendum frjálst að mæta á staðinn og taka þátt. Léttar veitingar verða í boði fyrir og eftir hlaupið.