Leikskólalóðin við Sóla tók sannkölluðum stakkaskiptum í sumar og hefur ný og glæsileg lóð nú verið formlega tekin í notkun. Frá þessu er greint á vef Vestmannaeyjabæjar.
Lögð var áhersla á að skapa fjölbreytt, fallegt og spennandi leiksvæði fyrir börnin. Linda Mjöll Stefánsdóttir átti veg og vanda að hönnun og vinnu við lóðina. Daníel Hjörtur Sigmundsson hannaði og smíðaði kofann sem setur skemmtilegan svip á svæðið og Ragnar Þór Jóhannsson vann að framkvæmdunum með tæki sín, ásamt Lindu og Daníel.
Auk þeirra kom fjöldi starfsmanna og ungmenna á vegum Vestmannaeyjabæjar að verkefninu.
Vestmannaeyjabær fjármagnaði framkvæmdina og leikskólinn nýtti jafnframt styrk úr þróunarsjóði fræðsluráðs. Efniviðurinn á lóðinni kemur víða að, en sérstök áhersla var lögð á notkun náttúrulegs og endurnýtanlegs efniviðar sem gefur börnunum tækifæri til að skapa, rannsaka og leika sér á eigin forsendum.
Hjónin Anna Svala og Gaui gáfu meðal annars veglegan rekavið í verkefnið. Þá var ýmislegt úr gamla kastalanum á lóðinni endurnýtt, þar á meðal rennibrautin.
Lóðin var formlega tekin í notkun í gær, fimmtudag við hátíðlega athöfn. Fjölskyldum barnanna, kennurum, bæjaryfirvöldum og þeim fjölmörgu sem komu að framkvæmdinni var boðið til samveru í tilefni áfangans.
Helga Björk skólastýra sagði nokkur orð um undirbúning verkefnisins og hugmyndir kennara um útikennslu og fjölbreytta nýtingu lóðarinnar. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri tók einnig til máls, sem og Eyrún Haraldsdóttir, fulltrúi í stjórn foreldrafélagsins. Eyrún ræddi meðal annars mikilvægi útiveru barna og foreldra og þau gæði sem felast í góðu og örvandi útinámsumhverfi.
Nýja lóðin býður upp á fjölbreytta möguleika til leiks, sköpunar, hreyfingar og könnunar. Kennarar og börn í leikskólanum Sóla færa öllum sem komu að verkefninu þakkir fyrir samstarfið, hugmyndirnar, vinnuna og þann stuðning sem verkefnið fékk.