HSU kynnti nýsköpun í heilbrigðisþjónustu
Gestir á Nýsköpunardegi HSU á Hótel Selfossi. Mynd: HSU.

Notkun gervigreindar í heilsugæslu, á hjúkrunarheimilum og við myndgreiningu á bráðamóttöku var meðal þess sem kynnt var á Nýsköpunardegi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) á Hótel Selfossi. Þetta kemur fram í umfjöllun sem birtist á vef HSU fyrir helgi.

Gunnar Thorarensen, yfirlæknir Stafrænnar heilsu, opnaði dagskrána og kynnti starfsemi miðstöðvarinnar, sem vinnur að þróun og nýsköpun fyrir heilbrigðiskerfið. Í ávarpi sínu hrósaði hann HSU fyrir nýsköpun í heilbrigðismálum og sagði eftir því tekið hvernig unnið væri að þeim málum á Suðurlandi.

Dagskráin var fjölbreytt og vakti mikinn áhuga meðal gesta. Sérstaklega vöktu athygli erindi um notkun gervigreindar í heilbrigðisþjónustu, þar sem kynnt voru dæmi um hvernig tæknin er nýtt bæði í móttöku heilsugæslu, á hjúkrunarheimilum og við myndgreiningu á bráðamóttöku. Fram kom greinilega að nýsköpun á HSU hefur þegar sýnt merki um betri nýtingu á tíma starfsfólks og aukið öryggi sjúklinga.

Í ávarpi dagsins kom meðal annars fram að nýsköpun væri ekki markmið í sjálfu sér heldur er hún leið til að bæta þjónustu, styrkja faglegt starf og mæta breyttum þörfum samfélagsins. Starfsfólk HSU er lykillinn að þeirri þróun og hugmyndir þess eru grundvöllur framtíðaruppbyggingar stofnunarinnar. Fjölbreytileiki verkefnanna, öflug þátttaka starfsfólks og mikill áhugi gesta gefa skýr skilaboð um að HSU ætlar sér að vera áfram í fararbroddi í þróun heilbrigðisþjónustu á Íslandi á komandi árum.

Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU, þakkaði starfsfólki fyrir þátttökuna og sagði mikilvægt að miðla reynslu og prófa nýjar leiðir.

„Það er virkilega ánægjulegt að fá tækifæri til að deila þessari spennandi vegferð HSU með samfélaginu. Mig langar að þakka öllu starfsfólki okkar sem tóku þátt í dagskránni í dag og deildu með okkur þekkingu og reynslu. Það er einmitt með því að deila, læra hvert af öðru og þora að prófa nýjar leiðir sem við höldum áfram að þróast. Við höfum alla ástæðu til að vera stolt af því góða starfi sem á sér stað hér á hverjum degi.” sagði Díana í umfjöllun HSU.

Nýjustu fréttir

HSU kynnti nýsköpun í heilbrigðisþjónustu
Fimm börn fædd í Betel 
Eyjakonur sækja Íslandsmeistarana heim
ÍBV mætir Stjörnunni í fyrsta leik neðri hlutans
Syðsti hluti Heimaeyjar eins og við sjáum hann sjaldan
50 ára sögu Íþróttamiðstöðvarinnar fagnað
Tómas Bent lagði upp mark í sigri Hearts
Flóðljósin á Hásteinsvelli komin í gagnið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.