Tómas Bent lagði upp mark í sigri Hearts
Tómas Bent Magnússon í leik með Hearts.

Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon var í byrjunarliði Hearts í 0-3 útisigri gegn Stenhousemuir í 8-liða úrslitum skoska deildarbikarsins í fótbolta í gærkvöld. Stenhousemuir leikur í næstefstu deild í Skotlandi og er á toppnum þar. Hearts situr í þriðja sæti skosku úrvalsdeildarinnar.

Tómas lék á miðjunni hjá Hearts og spilaði 65 mínútur. Hann lagði upp fyrsta mark liðsins sem JJ Williams skoraði á 35. mínútu leiksins. Roger Mato skoraði annað mark Hearts fjórum mínútum síðar og Yan Dhanda innsiglaði sigurinn stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Hearts er því komið í undanúrslit skoska deildarbikarsins en það er ekki ljóst hverjum liðið mætir þar, þar sem hinir leikirnir fara fram um helgina.

Nýjustu fréttir

Futsal mót knattspyrnudeildar ÍBV fer fram á morgun
Fyrsti kjarasamningur sjómanna á smábátum frá 2012
Líkn færir sjúkradeild HSU í Eyjum tvö ný tæki
Vont veður hrakti Eyjarnar af Gerpisflakinu
Handverks- og vörumarkaður í Höllinni
Steinunn sló botninn í Safnahelgina með húmor og frásagnargleði
Truflanir hjá Microsoft hafa áhrif
Jónína Einarsdóttir 100 ára
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.