Fimmtíu ára sögu Íþróttamiðstöðvar og sundhallar Vestmannaeyja var fagnað með afmælisathöfn í Íþróttamiðstöðinni í morgun.
Við athöfnina fluttu ávörp Hákon Helgi Bjarnason, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja, Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Páll Zóphóníasson, fyrrverandi bæjarstjóri og bæjartæknifræðingur. Að því loknu fór fram pottaspjall með bæjarfulltrúum. Gestum var boðið upp á köku, kaffi og djús og frítt var í sund í tilefni tímamótanna.
Með fréttinni fylgja myndir sem Óskar Pétur Friðriksson tók frá afmælisathöfninni í dag.
Í myndagallerý eru einnig myndir frá Óskari sem teknar voru í Íþróttamiðstöinni, 1977.




