Kvennalið ÍBV í handbolta sækir Val heim í Olísdeildinni í dag, sunnudag. Leikurinn hefst klukkan 18:00 í N1 höllinni og er sjónvarpsleikur umferðarinnar, samkvæmt samfélagsmiðli ÍBV handbolta.
Eyjakonur hófu tímabilið með 32:28 sigri á KA/Þór í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og eru því með tvö stig eftir einn leik. Valur tapaði sínum fyrsta leik, 21:25 gegn Selfossi á heimavelli, og leitar enn að fyrstu stigum tímabilsins.
Fram undan er því áhugaverð viðureign hjá Eyjakonum gegn ríkjandi Íslandsmeisturum. Flautað verður til leiks klukkan 18:00.