Aðalfundur Smábátafélagsins Farsæls í Vestmannaeyjum verður haldinn föstudaginn 25. september klukkan 17.00 á efri hæð Fiskmarkaðs Vestmannaeyja.
Gestir fundarins verða Kjartan Páll Sveinsson, nýr formaður Landssambands smábátaeigenda, og Bryndís Ósk Björnsdóttir, nýráðin framkvæmdastjóri sambandsins.
Félagar í Farsæli eru hvattir til að mæta enda séu miklar breytingar í farvatninu. Smábátasjómenn í Vestmannaeyjum sem ekki eru skráðir í félagið geta haft samband við Georg Eið Arnarson í síma 869-3499.
Heitt verður á könnunni, segir í tilkynningu frá félaginu.