Bæjarráð segir óásættanlegt að íbúar Vestmannaeyja þurfi sjálfir að greiða stóran hluta kostnaðar við almannavarnalögnina NSL-4. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur hafnað beiðni bæjarins um endurgreiðslu eða niðurfellingu virðisaukaskatts vegna framkvæmdarinnar.
Vestmannaeyjabær sendi fjármála- og efnahagsráðherra í júní 2025 ósk um breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Markmiðið var að heimila endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna lagningar neysluvatnslagnar sveitarfélagsins.
Jafnframt óskaði bærinn svara við því hvort ráðherra gæti með stjórnvaldsbréfi til tollyfirvalda fellt niður virðisaukaskatt vegna innflutnings lagnarinnar.
Svar ráðuneytisins barst 9. september. Þar kemur fram að ráðuneytið telji ekki forsendur til að leggja til umbeðna lagabreytingu. Þá sé heldur ekki fyrir hendi lagaheimild til að fella niður virðisaukaskatt vegna innflutnings lagnarinnar með stjórnvaldsbréfi eða tilmælum til tollyfirvalda.
Vestmannaeyjabær hefur lagt út fyrir kostnaði við nýju almannavarnalögnina, að frátöldu 800 milljóna króna framlagi ríkisins. Í bókun bæjarráðs segir að ríkið taki framlagið nú að stórum hluta til baka með álagningu skatta og gjalda.
„Eftir stendur að íbúar í Vestmannaeyjum þurfa að greiða fyrir almannavarnir sem hlýtur að teljast einsdæmi,“ segir í bókuninni.
Bæjarráð telur óásættanlegt að viðræðum við ríkið um fjármögnun lagnarinnar sé ekki lokið þótt framkvæmdin sé komin á lokastig. Óskað hefur verið eftir fundi með fulltrúum fjármála- og efnahagsráðuneytisins, dómsmálaráðuneytisins og innviðaráðuneytisins.
Á fundinum greindi bæjarstjóri einnig frá stöðu þrýstiprófana á NSL-4. Fyrstu niðurstöður eru sagðar jákvæðar. Þrýstingur hefur haldist á lögninni án merkja um marktækt þrýstifall og rennsli mælst um þrír lítrar á sekúndu.
Fram undan eru umfangsmeiri prófanir, útskolun lagnarinnar og tenging hennar við kerfi HS Veitna í Vestmannaeyjum. Að því loknu verða gerðar rennslisprófanir til að staðfesta afköst lagnarinnar.
Þótt málið beri yfirskriftina „Útlagning almannavarnalagnar NSL-4 og tjón“ koma ekki fram nýjar upplýsingar í bókuninni um mat á umfangi tjónsins eða áætlaðan kostnað vegna þess.