Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Olga Sevcova best og Edda Dögg hlaut Fréttabikarinn
Edda Dögg Sindradóttir, Allison Grace Lowrey og Guðný Geirsdóttir. Ljósmynd/Óskar Pétur

Kvennalið ÍBV hélt lokahóf í gærkvöldi þar sem gert var upp glæsilegt knattspyrnusumar. Eyjakonur höfðu sannarlega tilefni til að fagna eftir frábært tímabil þar sem liðið hafnaði í þriðja sæti Bestu deildar kvenna og komst í undanúrslit Mjólkurbikarsins. Með árangrinum jafnaði liðið besta árangur nýliða í deildinni.

Lokahófið fór fram á Háaloftinu. Óskar Jósúa sá um veislustjórn og Einsi Kaldi sá um veitingarnar.

Á lokahófinu voru veitt verðlaun fyrir frammistöðu sumarsins. Olga Sevcova var valin besti leikmaður meistaraflokks kvenna og Edda Dögg Sindradóttir hlaut Fréttabikarinn sem efnilegasti leikmaður ÍBV.

Viktorija Zaicikova var jafnframt heiðruð fyrir að hafa leikið 100 leiki fyrir félagið. Þá lagði Guðný Geirsdóttir hanskana á hilluna eftir feril sinn hjá ÍBV. Henni var þakkað fyrir sitt framlag til félagsins.

Hér að neðan má sjá verðlaunahafa og myndir frá kvöldinu.

Meistaraflokkur kvenna

Besti leikmaðurinn: Olga Sevcova

Fréttabikarinn/efnilegust: Edda Dögg Sindradóttir

ÍBV-ari: Guðný Geirsdóttir

Markahæst: Allison Grace Lowrey

Edda Dögg, Lowrey og Guðný með verðlaunin sín.

 

2. flokkur kvenna

Mestu framfarir: Maríanna Jónasdóttir

Markahæst: Eydís María Waagfjörð

ÍBV-ari: Ísey María Örvarsdóttir

Besti leikmaðurinn: Magdalena Jónasdóttir

Magdalena, Eydís María, Ísey og Maríanna.
Edda Dögg Sindradóttir hlaut Fréttabikarinn/efnilegust.

Nýjustu fréttir

Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.