Úrvalslið Bestu deildar kvenna í fótbolta fyrir tímabilið 2026 var kynnt í hlaðvarpsþættinum Uppbótartíminn á Fótbolta.net. Þar voru valdir þeir leikmenn sem þóttu hafa skarað fram úr í deildinni á tímabilinu og staðið sig hvað best með sínum liðum.
Allison Clark, leikmaður ÍBV, var valin í úrvalslið tímabilsins. Í umsögn Fótbolta.net um Clark segir að hún hafi farið á kostum með ÍBV í Lengjudeildinni í fyrra og haldið uppteknum hætti í Bestu deildinni í sumar. Hún kom að tíu mörkum liðsins og var jafnframt sterk í baráttunni á miðsvæðinu. Clark tók flest skallaeinvígi allra leikmanna deildarinnar í sumar og vann tæplega 42% þeirra, sem er góður árangur hjá miðjumanni.
Þá voru þrír leikmenn ÍBV á varamannabekk liðsins, þær Olga Sevcova, Guðný Geirsdóttir og Allison Grace Lowrey.
Í þættinum var einnig farið yfir tímabilið og verðlaunahafar ársins kynntir. Agla María Albertsdóttir, leikmaður Íslandsmeistara Breiðabliks, var valin leikmaður ársins, liðsfélagi hennar, Líf Joostdóttir Van Bemmel, var útnefnd efnilegasti leikmaður ársins og Ian David Jeffs, þjálfari Breiðabliks og fyrrum leikmaður og þjálfari ÍBV, var valinn þjálfari ársins.

Varamannabekkur
Guðný Geirsdóttir – ÍBV
Telma Steindórsdóttir – Stjarnan
Natasha Anasi – Grindavík/Njarðvík
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir – FH
Olga Sevcova – ÍBV
Helena Errington – FH
Alisson Grace Lowrey – ÍBV
Alda Ólafsdóttir – Fram
Taylor Marie Hamlett – Fram