Tekið er á móti jólagjöfum fyrir verkefnið „Jól í skókassa“ í Landakirkju. Skókassarnir verða sendir til barna í Úkraínu og er síðasti skiladagur föstudagurinn 30. október. Einnig er hægt að skila þeim beint til Flytjanda.
Í færslu á Facebook-síðu Landakirkju kemur fram að „Jól í skókassa“ sé alþjóðlegt verkefni þar sem börn og fullorðnir gleðja börn sem búa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með jólagjöfum. Markmiðið sé að sýna þeim kærleik Guðs í verki.
Gjafirnar eru settar í skókassa og er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa svo börnin fái sambærilegar jólagjafir.
Samkvæmt færslunni ríkir mikil örbirgð á svæðinu í Úkraínu þar sem gjöfunum verður dreift. Íslensku skókössunum verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili og barnaspítala, auk þess sem þeir verða færðir börnum einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt.
Aðalskipuleggjandi dreifingarinnar í Úkraínu er faðir Evheniy Zhabkovskiy. Hann starfar með KFUM þar í landi og hefur aðstoðað sjálfboðaliða KFUM og KFUK þegar þeir hafa farið með gjafirnar til Úkraínu. Hann hefur einnig heimsótt Ísland og kynnt sér starf samtakanna hér.
Tengiliður verkefnisins er Trausti Mar Sigurðsson í síma 823-5998. Jól í skókassa á síðu KFUM.