Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Síldarflök á leið til frystingar í uppsjávarvinnslu Vinnslustöðvarinnar. Ljósmynd/Vinnslustöðin.

Alls hefur verið landað um 11.000 tonnum af norsk-íslenskri síld hjá Vinnslustöðinni og um 1.200 tonn eru eftir af kvóta félagsins. Fram kemur á vef Vinnslustöðvarinnar að vertíðin hafi hafist 11. september þegar Gullberg VE 292 landaði um 370 tonnum.

Farið var hægt af stað fyrstu vikurnar á meðan nýtt uppsjávarhús var tekið í notkun og búnaður stilltur. Nýja húsið og endurbætur á uppsjávarvinnslunni hafa reynst vel.

Gangur veiðanna hefur verið misjafn, einkum vegna veðurs, og suma daga hefur botninn alveg dottið úr þeim. Síldin hefur þó að mestu leyti verið góð og stór hluti aflans farið til frystingar.

Í næstu viku verður farið að huga að veiðum á íslenskri sumargotssíld. Búist er við að þær veiðar verði fyrir vestan land, en Vinnslustöðin á rúmlega 6.000 tonn eftir af þeim kvóta.

Nýjustu fréttir

Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Hafsteinn Þórólfsson syngur eyjaperlur í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.