Á ljósmyndadegi í Safnahúsinu á fimmtudag klukkan 13.30 verða sýndar elstu varðveittu ljósmyndir úr blómlegu starfi Leikfélags Vestmannaeyja. Þar gefst gestum tækifæri til að rifja upp gamlar leiksýningar, þekkja kunnugleg andlit og leggja sitt af mörkum við að varðveita sögu leiklistar í Eyjum.
Ljósmyndadagurinn er hluti af Safnahelgi í Vestmannaeyjum. Að þessu sinni verður sjónum beint að Leikfélagi Vestmannaeyja, sem á sér langa og merka sögu í menningarlífi bæjarins.
Á myndunum má sjá leikara í hlutverkum sínum og svipmyndir úr leiksýningum fyrri tíma. Spennandi verður að sjá hverja gestir þekkja og hvort þeir geti rifjað upp nöfn leikara, leikrit og sögur tengdar sýningunum.
Gömlu ljósmyndirnar eru dýrmæt heimild um menningarlíf í Eyjum og geta minningar bæjarbúa hjálpað til við að fylla í eyður í sögu leikfélagsins.
Ljósmyndadagurinn hefst í Safnahúsinu á morgun, fimmtudag klukkan 13.30 og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta.