Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa. Vaxandi austanátt er í kortunum í kvöld, miðvikudaginn 28. október, og hvassviðri og rigning í nótt.
Samkvæmt veðurspá er gert ráð fyrir austan 13–20 metrum á sekúndu í nótt, hvassast undir Eyjafjöllum. Á fimmtudag snýst vindur í sunnanátt um hádegi og dregur úr vindi. Þá styttir að mestu upp, fyrst suðvestanlands.
Fólk er hvatt til að fylgjast með uppfærðum viðvörunum og veðurspám og taka mið af aðstæðum við skipulag ferða og útivinnu.
Nánari upplýsingar má finna á viðvaranasíðu Veðurstofu Íslands og í nýjustu veðurspá.