Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Fundur bæjarstjórnar 2026
Frá fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Myndin tengist ekki afgreiðslu þeirra starfsmannamála sem fjallað er um í leiðaranum. Leiðarahöfundur telur að þrír úrskurðir um ólögmætar uppsagnir kalli á sjálfstæða og gagnsæja yfirferð.
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Þrjár uppsagnir starfsmanna Vestmannaeyjabæjar hafa á skömmum tíma verið úrskurðaðar ólögmætar af innviðaráðuneytinu. Forsendur úrskurðanna eru ekki allar þær sömu, en saman kalla þeir óhjákvæmilega á spurningar um verklag, eftirlit og pólitíska ábyrgð.

Það er bæði rétt og nauðsynlegt að gæta trúnaðar um persónuleg málefni starfsmanna. Eyjafréttir hafa frá upphafi lagt áherslu á að birta ekki nöfn, vinnustaði eða upplýsingar sem gætu orðið til þess að bera kennsl á einstaklingana sem málin varða.

Trúnaður um einstaklinga getur hins vegar ekki þýtt að engar spurningar megi ræða um stjórnsýslu sveitarfélagsins.

Þegar þrjár íþyngjandi ákvarðanir sama sveitarfélags eru metnar ólögmætar af æðra stjórnvaldi á fáeinum mánuðum er eðlilegt að spurt sé hvort málin hafi verið tekin til formlegrar skoðunar, hvort verkferlar hafi verið endurmetnir og hvernig pólitísku eftirliti með stjórnsýslunni sé háttað.

Slíkar spurningar varða ekki einkalíf starfsmanna. Þær varða meðferð opinbers valds.

Ólík afstaða oddvitanna

Svör oddvita flokkanna í bæjarstjórn sýna ólíka afstöðu til þess hvernig bregðast eigi við úrskurðunum.

Eyþór Harðarson telur málin hafa verið nægilega vel kynnt fyrir bæjarráði. Hann lýsir trausti á faglegri meðferð starfsmannamála hjá Vestmannaeyjabæ og sér ekki ástæðu til óháðrar úttektar á verklaginu.

Hann segist jafnframt ekki myndu andmæla því að niðurstöður ráðuneytisins yrðu bornar undir dómstóla teldu stjórnendur starfsmannamála ástæðu til þess.

Afstaða Eyþórs er skýr. En traust á núverandi verklagi er ekki sjálfstætt svar við þremur úrskurðum þar sem ákvarðanir bæjarins hafa verið metnar ólögmætar. Slíkt traust þarf að styðjast við sýnilega yfirferð og rök, ekki aðeins fullvissu um að faglega sé unnið.

Jón Þór Guðjónsson vísaði fyrst til trúnaðar og svaraði spurningum Eyjafrétta ekki efnislega. Eftir birtingu umfjöllunar blaðsins hafði hann samband, sagðist hafa misskilið fyrirspurnina og gerði ítarlega grein fyrir afstöðu sinni.

Það er virðingarvert að leiðrétta fyrra svar og stíga inn í umræðuna með málefnalegum hætti.

Jón Þór telur að taka þurfi niðurstöður ráðuneytisins alvarlega. Hann segir sjálfsagt að farið verði yfir verklag bæjarins, skoðað hvað megi betur fara og að kjörnir fulltrúar og almenningur fái upplýsingar um niðurstöður og mögulegar úrbætur, eftir því sem trúnaður leyfir.

Arndís María Kjartansdóttir segist hafa verið upplýst um úrskurðina fljótlega eftir að þeir lágu fyrir en hefur að öðru leyti vísað til trúnaðar. Hún hefur því ekki tekið efnislega afstöðu til almennra spurninga um pólitískt eftirlit, mögulega úttekt á verklagi, upplýsingagjöf eða dómsmeðferð.

Trúnaður skýrir hvers vegna ekki er hægt að ræða persónuleg málefni starfsmanna. Hann skýrir ekki hvers vegna kjörinn fulltrúi getur ekki svarað almennum spurningum um stjórnsýslu, eftirlit og viðbrögð sveitarfélagsins.

Pólitískri ábyrgð verður ekki útvistað

Stjórnendur og sérfræðingar annast daglegan rekstur sveitarfélagsins. Kjörnir fulltrúar bera hins vegar pólitíska ábyrgð gagnvart íbúum.

Sú ábyrgð felst meðal annars í að spyrja gagnrýninna spurninga, kalla eftir skýringum og tryggja að lærdómur sé dreginn þegar æðra stjórnvald kemst að þeirri niðurstöðu að ákvarðanir sveitarfélagsins hafi ekki verið lögmætar.

Pólitísk ábyrgð verður ekki falin inni í stjórnsýslunni og henni verður ekki útvistað til þeirra stjórnenda sem komu að meðferð málanna. Kjörnir fulltrúar eiga sjálfir að leggja mat á hvort eftirlit hafi verið fullnægjandi og hvort viðbrögð bæjarins séu nægileg.

Gagnrýna má reglurnar – en þeim verður að fylgja

Jón Þór gagnrýnir regluverk opinberra starfsmannamála og telur það orðið of þungt og ósveigjanlegt. Sú afstaða á fullan rétt á sér í opinberri umræðu.

Lög, kjarasamningar og reglur eru ekki hafin yfir gagnrýni. Kjörnir fulltrúar mega kalla eftir breytingum ef þeir telja að gildandi fyrirkomulag komi í veg fyrir eðlilega stjórnun eða skapi óásættanlegt ójafnvægi.

En þar til reglunum hefur verið breytt ber stjórnvöldum að fylgja þeim.

Það verður einnig að gæta þess að almenn gagnrýni á regluverkið verði ekki látin varpa skugga á þá einstaklinga sem málin varða. Jón Þór tekur sjálfur skýrt fram að gagnrýni hans beinist ekki að þeim starfsmönnum sem úrskurðirnir þrír taka til.

Yfirferð er ekki áfellisdómur

Sjálfstæð og heildstæð yfirferð á verklagi væri ekki yfirlýsing um sekt og ekki fyrirframgefinn áfellisdómur yfir stjórnendum eða starfsfólki bæjarins.

Slík yfirferð gæti leitt í ljós hvað var rétt gert, hvað fór úrskeiðis og hvort bæta þurfi verklag, ábyrgðarskiptingu eða aðkomu lögfræðiráðgjafa. Hún gæti jafnframt skýrt hvort sameiginlegir veikleikar séu á milli málanna eða hvort um þrjú ólík tilvik sé að ræða.

Markmiðið ætti ekki að vera að finna blóraböggla. Markmiðið ætti að vera að draga lærdóm og draga úr líkum á að sambærileg staða komi aftur upp.

Eftir þrjá úrskurði ætti spurningin ekki lengur að vera hvort tilefni sé til yfirferðar heldur hvernig hún verði framkvæmd, hver annist hana og hvort niðurstöðurnar verði gerðar opinberar. Að láta stjórnsýslu bæjarins eina um að meta eigin vinnubrögð er ekki líklegt til að endurheimta traust.

Vestmannaeyjabær er ósammála lagamati ráðuneytisins og kann að láta reyna á úrskurðina fyrir dómstólum. Sveitarfélagið á fullan rétt á því. Möguleg dómsmeðferð kemur þó ekki í veg fyrir að stjórnsýslan og kjörnir fulltrúar fari yfir eigin verkferla.

Gagnsæi styrkir traust

Kjörnir fulltrúar eiga ekki að ræða viðkvæm persónuleg málefni opinberlega. Þeir eiga hins vegar að geta svarað því hvernig þeir sinna eftirlitshlutverki sínu og hvernig þeir hyggjast fylgja eftir þremur úrskurðum æðra stjórnvalds.

Þar eru oddvitarnir ekki sammála. Eyþór treystir núverandi verklagi og telur ekki þörf á óháðri úttekt. Jón Þór vill yfirferð og upplýsingagjöf um niðurstöður hennar. Arndís María hefur ekki tekið efnislega afstöðu til þessara spurninga.

Sú umræða þarf að halda áfram.

Gagnsæ yfirferð ógnar ekki trúnaði um einstaklinga. Hún er nauðsynleg til að sýna að sveitarfélagið ætli að læra af niðurstöðunum en ekki aðeins leita leiða til að verjast þeim.

Eftir þrjá úrskurði um ólögmætar uppsagnir er sjálfstæð og gagnsæ yfirferð hið minnsta sem hægt er að ætlast til.

 

Tryggvi Már Sæmundsson
ritstjóri Eyjafrétta.

 

Tengd umfjöllun

Nýjustu fréttir

Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.