Hrekkjavakan verður haldin á morgun, laugardaginn 31. október og verður gengið í hús milli kl. 18:00 og 21:00.
Nýtt fyrirkomulag verður í ár en bænum verður skipt í þrjú hverfi. Hvert hverfi fær ákveðinn tíma til að taka á móti hrekkjavökugestum og gefa nammi. Markmiðið er að dreifa umferðinni betur og stuðla að því að fleiri hús fái heimsóknir yfir kvöldið.
Íbúar og gestir eru hvattir til að virða tímasetningar hverfanna. Þeir sem taka þátt eru jafnframt beðnir um að setja blöðru á húsið á vel sýnilegum stað. Þegar nammið klárast á að sprengja blöðruna svo börnin viti að þar sé ekki lengur tekið á móti gestum.
Hér að neðan má sjá heimilisföngin í hverju hverfi og hvenær tekið verður á móti gestum.
Graskerahverfið – kl. 18:00–19:00
Áshamar 3D og 51
Búhamar 17, 21, 34, 86, 88 og 90
Goðahraun 4
Hrauntún 23, 26 og 53
Höfðavegur 39
Illugagata 44 og 50
Draugahverfið – kl. 19:00–20:00
Brattagata 5, 11 og 13
Fjólugata 21
Hásteinsvegur 49, 51 og 56
Heiðarvegur 35, 47, 60, 64 og 66
Hólagata 9
Illugagata 41
Smáragata 18
Vallargata 4b og 10
Nornahverfið – kl. 20:00–21:00
Austurvegur 4
Ásavegur 24 og 31
Birkihlíð 4, 19 og 20
Faxastígur 6b og 8a
Gerðisbraut 3
Helgafellsbraut 21
Hvítingavegur 12
Kirkjuvegur 67
Miðstræti 25
Vestmannabraut 52 og 57
Líkt og undanfarin ár verður veittur bikar fyrir skelfilegasta hús ársins.
Bókasafnið og Alþýðuhúsið taka einnig á móti hrekkjavökugestum milli kl 18:00-21:00