Lúðrasveit Vestmannaeyja hélt árlega hausttónleika sína í Hvítasunnukirkjunni í gær, laugardaginn 7. nóvember. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, fylgdist með tónleikunum í gegnum linsuna.
Hátt í 40 hljóðfæraleikarar komu fram. Á efnisskránni voru meðal annars lög eftir Oddgeir Kristjánsson, mars eftir Sousa og syrpa þjóðhátíðarlaga sem útsett var fyrir landsmót lúðrasveita í Eyjum í september.
Myndasyrpu Óskars Péturs frá tónleikunum má sjá hér að neðan.