Hundrað ára afmæli Jónínu í myndum
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri ræðir við Jónínu Einarsdóttur í hundrað ára afmæli hennar á Hraunbúðum. Barnabörn Jónínu, Jón Ólafur Daníelsson og Gunnar Ingi Gíslason, fylgjast með. Ljósmyndir: Eyjafréttir / Óskar Pétur Friðriksson

Jónína Einarsdóttir, elsti íbúi Vestmannaeyja, fagnaði hundrað ára afmæli sínu á Hraunbúðum í dag. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, leit við í afmælinu og tók myndir.

Meðal þeirra sem komu til að óska Jónínu til hamingju voru Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, og Lilja Björg Arngrímsdóttir, rekstrarstjóri Vinnslustöðvarinnar. Jónína starfaði um árabil í Fiskiðjunni og síðar hjá Vinnslustöðinni. Vinnslustöðin rifjar einnig upp starfsár Jónínu í Fiskiðjunni og Vinnslustöðinni í fréttinni Jónína á tíu fagnar 100 ára afmæli.

Fyrr í dag birtu Eyjafréttir umfjöllun um ævi Jónínu, sem er kennd við Götu og síðar Nýborg í Vestmannaeyjum. Jónína Einarsdóttir 100 ára – Eyjafréttir

Myndir Óskars Péturs úr afmælinu má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

Hundrað ára afmæli Jónínu í myndum
Sumarlokanir leikskólanna í Eyjum liggja fyrir
Futsal mót knattspyrnudeildar ÍBV fer fram á morgun
Fyrsti kjarasamningur sjómanna á smábátum frá 2012
Líkn færir sjúkradeild HSU í Eyjum tvö ný tæki
Vont veður hrakti Eyjarnar af Gerpisflakinu
Handverks- og vörumarkaður í Höllinni
Steinunn sló botninn í Safnahelgina með húmor og frásagnargleði
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.