Miðflokkurinn lagði til tveggja vikna sumarlokun leikskólanna
Leikskólinn Kirkjugerði. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Miðflokkurinn lagði til á fundi fræðsluráðs Vestmannaeyja að leikskólarnir lokuðu alveg í tvær vikur á sumrin og störfuðu með skertri starfsemi í tvær vikur fyrir lokunina og tvær vikur eftir hana. Foreldrar gætu þá valið hvort börn þeirra tækju fjögurra vikna samfellt sumarfrí fyrr eða síðar á sumrinu.

Jón Þór Guðjónsson bæjarfulltrúi vakti athygli Eyjafrétta á færslu Miðflokksins um málið. Þar kemur fram að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi lagt til að afgreiðslu tillögunnar yrði frestað og útfærslan kostnaðarmetin. Á sama fundi samþykkti fræðsluráð dagsetningar sumarlokunar fyrir árin 2027 og 2028.

Fyrirkomulagið 2028 gæti breyst

Í tilkynningu Vestmannaeyjabæjar kemur fram að fræðsluráð hafi samþykkt að leita umsagnar leikskólastjórnenda, kanna reynslu af fyrra fyrirkomulagi og afla kostnaðarmats. Ákvörðunin um sumarlokun 2027 stendur en ráðið getur endurskoðað fyrirkomulagið árið 2028 ef niðurstöður skoðunarinnar gefa tilefni til.

Miðflokkurinn segir að tillagan hafi falið í sér útfærslu sem hægt sé að kostnaðarmeta og þróa áfram. Flokkurinn vill að foreldrar og atvinnurekendur hafi svigrúm til að skipuleggja sumarleyfi og starfsemi og að jafnframt sé tekið mið af velferð barna og starfsfólks.

Nýjustu fréttir

Miðflokkurinn lagði til tveggja vikna sumarlokun leikskólanna
Fórnarlamba umferðarslysa minnst í Eyjum á morgun
Eyjakonur geta jafnað Hauka á toppnum
Hundrað ára afmæli Jónínu í myndum
Sumarlokanir leikskólanna í Eyjum liggja fyrir
Futsal mót knattspyrnudeildar ÍBV fer fram á morgun
Fyrsti kjarasamningur sjómanna á smábátum frá 2012
Líkn færir sjúkradeild HSU í Eyjum tvö ný tæki
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.