Eðlileg krafa ríkið skapi atvinnugreininni sanngjarnt umhverfi
27. apríl, 2020
Makrílvinnsla í uppsjávarhúsi VSV. Myndin tekin á vertíðinni 2018.

Bæjarráð ræddi stöðu sjávarútvegs í Vestmannaeyjum á tímum Covid-19 á fundi sínum í síðustu viku. Stjórnendur og starfsfólk fyrirtækjanna hefur lagt mikið á sig til að halda uppi sem eðlilegastri starfsemi og fyrirtækjunum gangandi. Það skiptir miklu máli að geta haldi uppi órofinni starfsemi á sama tíma og fyrirmælum er fylgt. Það hefur tekist vel. Ástandið hefur þó áhrif á rekstur og afkomu þessara fyrirtækja.

Mikilvægt er að virða frumkvöðlareynslu
Bæjarráð ræddi einnig stöðuna sem upp er komin vegna rangrar úthlutunar á markríl og ítrekaði bókun bæjarstjórnar frá því í júní 2019.

“Um áratuga skeið hafa Íslendingar borið gæfu til þess að byggja sínar veiðar á aflamarkskerfi. Með því hefur Íslendingum tekist að byggja upp langtíma hugsun sem er nauðsynleg m.t.t. góðrar umgengni við auðlindina, markaðsstöðu og styrkja þannig rekstrargrundvöll íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja.
Einn meginþáttur aflamarkskerfisins er frumkvöðlaréttur og veiðireynsla. Allt tegundir sem komnar eru í aflamarkskerfið og úthlutun var byggð á aflareynslu þeirra sem sinntu veiðum á þessum tegundum fyrir hlutdeildarsetningu. Aðilar sem lögðu í þær fjárfestingar sem þurfti til að stunda viðkomandi veiðar, bjuggu til þekkingu á veiðum, vinnslu og mörkuðum, sem sagt frumkvöðlar.
Útgerðir í Vestmannaeyjum og starfsmenn þeirra voru frumkvöðlar í makrílveiðum og eiga stóran þátt í því að skapa Íslandi veiðireynslu á makríl og t.d. var hlutur Eyjaskipa á fyrstu árum makrílveiðinnar tæp 40% af heildarveiði Íslendinga. Á þessum tíma lögðu útgerðir í Vestmannaeyjum áherslu á að veiða makríl með því að fjárfesta í nýjum fiskleitartækjum, þróun veiðarfæra, byggja upp þekkingu á aflameðferð, leita vinnsluleiða og markaðstækifæra. Þ.e.a.s. þeir gerðu allt það sama og þær útgerðir sem fengu úthlutað aflahlutdeild í gulllaxi, blálöngu, litla karfa, kolmunna og hlýra nokkrum árum fyrr og byggir á aflareynslu.
Ef úthlutun á aflamarki í makríl hefði fylgt sömu leikreglum og aðrar tegundir frá árinu 2011 þá væri hlutur Vestmannaeyja í makríl rúm 33% í dag en á síðasta ári (2018) var hann rúm 25%.
Mikilvægt er að virða frumkvöðlareynslu og fara eftir þeim leikreglum sem hafa verið í gildi en ekki að bjóða uppá ófyrirséðar ákvarðanir varðandi hugsanlegar framtíðarúthlutanir. Mikilvægt er að leikreglurnar séu skýrar og þeir sem eru frumkvöðlar viti að þeir njótið þess eins og verið hefur, annars er hvatinn enginn.

Óásættanlegt að stjórnvöld fari ekki eftir lögum
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins stóð svo einn af eftirfarandi bókun: “Vestmannaeyjabær, sjómenn, landvinnslufólk og þjónustuaðilar hafa orðið af verulegum tekjum og umsvifum undanfarinn áratug vegna þeirrar ólögmætu úthlutunar á makríl sem um er rætt. Óásættanlegt er að stjórnvöld fari ekki eftir sínum eigin lögum og reglum, hótanir stjórnvalda um auknar álögur vegna tilrauna fyrirtækja til að leita réttar síns eru heldur ekki til þess fallnar að skapa sátt í atvinnugreininni. Sjávarútvegurinn mun nú sem áður verða sú gjaldeyrisskapandi atvinnugrein sem veitir íslenska ríkinu mikilvægan efnahagslegan stuðning á erfiðum tímum. Eðlileg krafa er að íslenska ríkið skapi atvinnugreininni sanngjarnt umhverfi, bæði lagalegt og skattalegt sem gerir henni kleift að vaxa, m.a. með því fjárfesta í tækjum og búnaði sem gerir sjávarútveginn umhverfisvænni, stuðla að nýsköpun og veita þannig greininni möguleika á að halda áfram að vera hreyfiafl landsins til framfara.”

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
DSC 2106
8. júní 2025
13:00
Golfdagurinn í Eyjum
Tónleikar Kórs Vídalínskirkju í Landakirkju
8. júní 2025
17:00
Tónleikar Kórs Vídalínskirkju
Landakirkja
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.