Klaufar í Pakkhúsinu um næstu helgi

Hljómsveitin hefur verið að æfa upp hresst kántríprógram og hyggst leggja land undir fót og kántrívæða landann. �?�?að er bara eitt íslenskt kántríband á markaðnum í dag en það er Baggalútur og miðað við vinsældir þeirra þá er kántrítónlist að virka vel í fólkið�? sagði Mummi.

Eigandi Pakkhússins er fullur eftirvæntingar og mun í fyrsta skipti í mörg ár vera með svokallað Happy Hour eða tveir fyrie einn á öli fyrir klukkna 01:00. Hljómsveitin ætlar líka að reyna að skapa alvöru kántrístemmingu og ætlar að veita 50% afslátt fyrir þá sem að mæta með kúrekahatt fyrir klukkan 01:00. �?Við erum að vona að fólk á suðurlandi og víðar rífi sig nú út rétt fyrir jólin og nýti sér þessi frábæru tilboð, enda verður andrúmsloftið rafmagnað ef að 200 gestir Pakksússins mæta með hatt�? sagði Haraldur trymbill.

Hljómsveitin segist vera komin til að vera og er meðal annars á leiðinni í stúdíó í upptökur á fyrsta laginu. �?�?að er verið að finna rétta sándið og það þýðir ekkert að sitja á frumsamda efninu, bara kýla á það�? sagði Hebbi.

�?að má því búast við að húsfylli verði á Pakkhúsinu um helgina enda ekki á hverjum degi sem að Klaufar spila.
Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.