Landsbyggðirnar kalla 
Sótt hefur verið um tilraunaleyfi fyrir úthafseldi vestur af Vestmannaeyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Sjö landshlutasamtök á Íslandi hafa tekið sig saman um að bjóða stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum þátttöku í nýrri útgáfu af Ratsjánni, samtengdu verkefni sem hefst í upphafi árs 2021.

Ratsjáin er ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka nýsköpunarhæfni sína, hraða mikilvægum breytingaferlum og öðlast aukna yfirsýn og getu til að þróa vörur og þjónustu. Íslenski ferðaklasinn leiðir verkefnið í samstarfi við RATA og tengiliði frá landshlutasamtökum sveitarfélaga á Austurlandi, Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra, Vestfjörðum, Vesturlandi, Reykjanesi og Suðurlandi. Ljóst er að fyrirtæki í virðiskeðju ferðaþjónustunnar eru í miklum ólgusjó sem ekki sér fyrir endann á. Á næstu mánuðum er lykilatriði að halda fast um taumana, nýta sér þau úrræði sem í boði eru af hendi stjórnvalda ásamt því að nýta tímann til að efla nýsköpun, vöruþróun og stafræna ferla fyrirtækisins.

Ratsjáin mun snerta á helstu áskorunum sem fyrirtækjaeigendur standa frammi fyrir í dag en endanleg dagskrá mun verða unnin í samstarfi við þátttakendur sem geta haft áhrif á þá efnisþætti sem teknir verða fyrir. Meðal efnisþátta sem verða í boði eru: nýsköpun og vöruþróun, markaðsmál og markhópar, sjálfbærni og ábyrg ferðaþjónusta, stafræn þróun og tæknibylting fyrirtækja, breyttir tímar og tækifærin – kaupákvörðunarhringurinn, draumur stofnenda – tilgangur og markmiðasetning, heimasíður – hvernig skarar síðan mín fram úr?, jákvæð sálfræði, breytingastjórnun, endurhugsaðu viðskiptamódelið, skapandi hugsun sem verkfæri til framfara, samkeppnishæfni og sérstöðugreining, svo dæmi séu tekin.

Ratsjáin mun hefjast með formlegum hætti í janúar 2021 og standa yfir í 16 vikur eða til 16.apríl. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2020 og er umsóknareyðublað aðgengilegt hér á heimasíðu Íslenska ferðaklasans. Þátttakendur frá öllum landshlutum munu hittast á tveggja vikna fresti á sameiginlegum vinnustofum á netinu þar sem kafað verður í kjarna þeirra verkfæra sem fyrir valinu verða. Á milli sameiginlegra vinnustofa verður haldinn svæðisbundinn heimafundur í umsjón landshlutanna sjálfra. Þar verður farið nánar yfir efnistök frá sameiginlegum fundi og unnið með sérstöðu hvers svæðis fyrir sig á þeirra forsendum.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.