Grímur Hergeirsson verður settur lögreglustjóri á Suðurlandi öllu frá 1. júlí næstkomandi og út árið. Kjartan Þorkelsson lögreglustjóri verður í leyfi á sama tíma. Á þessum sex mánuðum verður Grímur einnig áfram lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, en því embætti hefur hann sinnt síðasta eina og hálfa árið. Þetta kemur fram á mbl.is og Morgunblaðinu í dag.
Grímur, sem var aðstoðarþjálfari ÍBV karla í handbolta síðasta tímabil tilkynnti á lokahófi að vegna breyttra aðstæðna yrði hann að hætta í handboltanum.
Hann kom svo til starfa í Eyjum undir lok árs 2020. Nánar á mbl.is
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst