Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum 650 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra í samræmi við tillögur stjórnar sjóðsins. Áhersla var lögð á verkefni sem bæta aðbúnað íbúa á hjúkrunarheimilum, úrbætur sem tengjast aðgengismálum og öryggismálum og ýmsum stærri viðhaldsverkefnum. Alls bárust umsóknir um framlög til 60 verkefna og hlutu 54 þeirra styrk.
Hæstu framlögin renna til hjúkrunarheimila Sjómannadagsráðs, alls um 250 milljónir króna til 14 mismunandi verkefna. Þar af vega þyngst úrbætur á Hraunvangi í Hafnarfirði þar sem m.a. verða gerðar endurbætur á 50 baðherbergjum í einkarýmum íbúa. Einnig verður þar ráðist í innleiðingu nýjungar sem felur í sér hæðarstillanleg salerni og handlaugar og færanleg sturtusett sem auðveldar íbúum að sinna persónulegu hreinlæti og bætir vinnuaðstöðu starfsfólks.
Af öðrum verkefnum sem hljóta styrk eru margvísleg endurbóta- og viðhaldsverkefni á hjúkrunarheimilum víðsvegar um landið. Sem dæmi má nefna endurnýjun á lyftubúnaði, endurbætur á netkerfum, uppsetning á nýjum brunakerfum, endurnýjun raflagna og endurbætur á útiaðstöðu íbúa. Sveitarfélagið Ölfus fær tæpar 29 milljónir króna í styrk vegna framkvæmda við nýja dagdvöl fyrir 16 einstaklinga.
Framkvæmdasjóður aldraðra starfar á grundvelli laga um málefni aldraðra og er ætlað að stuðla að uppbyggingu og eflingu öldrunarþjónustu um allt land. Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra annast málefni sjóðsins og gerir árlega tillögur til heilbrigðisráðherra um úthlutun úr sjóðnum. Við úthlutun er umsóknum raðað í forgangsröð í samræmi við viðmið heilbrigðisráðuneytisins um skipulag hjúkrunarheimila 2022.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.