Ábyrg ferðahegðun
28. janúar, 2019

Fjölgun í komu ferðamanna til Íslands hefur leitt til aukinnar hagsældar í efnahagskerfi landsins, fleiri störf hafa skapast og byggðir landsins styrkst. Það eru tvær hliðar á sama pening og hefur þessi þróun einnig leitt til ýmissa áskoranna hvað varðar samfélagsleg og umhverfisleg þolmörk.

Ferðamenn á Íslandi eru mismunandi og hafa mismikil áhrif á efnahag, umhverfi og samfélag. Rannsóknir á ferðavenjum sýna að flestir ferðamenn koma til þess að sjá og upplifa náttúru Íslands en ferðamenn eru einnig áhugasamir um íslenska menningu. Á þeim svæðum þar sem stunduð er ferðamennska mætast mismunandi menningarheimar sem getur oft á tíðum verið krefjandi. Heimamenn kynnast ólíkum siðum og venjum á meðan ferðamenn vilja kynnast menningu svæðisins.

Ferðamenn sem koma til Íslands eru margir hverjir vanir ferðamenn sem sýna ábyrga ferðahegðun en einnig koma hingað ferðamenn sem eru ekki vanir því að ferðast, eru svokallaðir fyrstu kynslóðar ferðamenn. Hegðun og umgengni um náttúru og menningu landsins er kannski ekki alltaf til fyrirmyndar og er ástæðan kannski sú að þessir ferðamenn eru enn að læra að ferðast. Áhugavert er í þessu samhengi að líta til þess þegar Íslendingar byrjuðu að fara til sólarlanda á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. „Á Spáni er gott að djamma og djúsa“ eins og Laddi syngur svo skemmtilega lýsir þessum ferðalögum kannski ágætlega. Það má segja að Íslendingar hafi á þeim tíma verið fyrstu kynslóðar ferðamenn. Hegðun og umgengni um náttúru og menningu þeirra svæða sem þeir heimsóttu var ekki alltaf til fyrirmyndar. Stundum finnst okkur skrítið að ferðamenn sem koma til Íslands taki með sér mat að heiman eða eldi núðlur inni á herbergjum. Þá er gott að rifja upp þegar íslenskar fjölskyldur tóku með sér lambalærið og ora grænar til útlanda svo fjölskyldumeðlimir þyrftu ekki að vera án þess að fá íslenskan mat í heilar tvær vikur.

Ferðamenn munu koma áfram til Íslands, bæði þeir sem ferðast á ábyrgan hátt en einnig þeir sem hafa litla reynslu af ferðalögum. Til þess að auka enn frekar á jákvæða upplifun heimamanna og ferðamanna þurfum við að huga að því hvernig við sem samfélag getum stutt við og hvatt til ábyrgrar ferðahegðunar þannig að áhrif ferðaþjónustu á efnahag, samfélag og náttúru haldi áfram að vera jákvæð fyrir land og þjóð.

Markaðsstofa Suðurlands er hluti af stoðkerfi ferðaþjónustunnar á Suðurlandi. Tilgangur hennar er m.a. að hafa yfirsýn, gæta hagsmuna og veita upplýsingar. Þessi grein er liður í að efla umræðu og fræðslu um áhrif ferðaþjónustu á svæðinu.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida EF 3 Tbl 25
3. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Vsv Logo Blue Vsv
29. apríl 2025
17:00
Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar
Aðalfundur ÍBV Íþróttafélags
29. apríl 2025
17:00
Aðalfundur ÍBV Íþróttafélags
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst