Aðgæsluveiði
Mynd/ Arnar Berg Arnarsson

Vestmannaeyjaskipin Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu bæði fullfermi í Eyjum í fyrradag. Afli Bergs var mest þorskur og ýsa en afli Vestmannaeyjar var blandaðri; þorskur, ýsa, ufsi og langa. Það tók innan við sólarhring hjá skipunum að fá í sig. Heimasíða Síldarvinslunnar ræddi stuttlega við skipstjórana og létu þeir vel af sér. Jón Valgeirsson á Bergi sagði að þeir hefðu verið að veiðum í Háfadýpinu. “Við vorum hérna við bæjardyrnar og það hefur verið mokveiði sitt hvoru megin við Eyjarnar. Fiskurinn heldur sig innarlega en það er miklu minna að fá utar. Þetta er hinn fallegasti fiskur sem fæst, stór og góður. Að undanförnu hefur hreinlega verið blússandi veiði og ekki yfir neinu að kvarta,” segir Jón.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, tekur undir með Jóni og segir að veiðin hafi gengið eins og í sögu. “Við vorum í Háfadýpinu og á Hálshrauni og veiðin gekk afar vel. Staðreyndin er sú að það var þarna aðgæsluveiði. Menn geta ekki verið annað en sáttir við aflabrögðin og fiskurinn sem fæst er hinn ágætasti,” segir Birgir Þór.

Bæði skip héldu til veiða strax að lokinni löndun samdægurs og munu þau leggja áherslu á ýsu- og ufsaveiði að þessu sinni.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.