�?tlum að fylla húsið í kvöld
Eyjamenn fóru illa að ráði sínu síðasta miðvikudagskvöld að Varmá. �?á var liðið með unninn leik í höndunum þegar innan við ein mínúta var til leiksloka. Afturelding jafnaði metin og vann síðan að lokum í framlengingu.
Að vera með bakið upp við vegg í svona einvígi er eitthvað sem Eyjamenn þekkja mjög vel, oftar en ekki þarf liðið að vinna tvo síðustu leikina í sínum einvígum.
Við slóum á þráðinn til Gunnars og heyrðum í honum fyrir leik.

�??Málið er ósköp einfalt, við þurfum að fylla kofann í kvöld og Eyjamenn þurfa að mæta og styðja strákana. Við erum hundsvekktir með síðasta leik og við erum engan veginn tilbúnir að fara í sumarfrí,�?? sagði Gunnar í morgun en hann hættir með liðið að loknu tímabili.
�??Strákarnir verða að fá góðan stuðning í kvöld og þar er bara skyldumæting á leikinn. Við ætlum að tryggja okkur oddaleik og skreppa í bæjarferð á sunnudaginn með okkar fólki og koma okkur áfram í undanúrslit,�?? bætti Gunnar við en það yrði ekki í fyrsta skiptið sem að fólk myndi flykkjast upp á land til þess að styðja við bakið á strákunum.
�??�?g hef fulla trú á strákunum, við höfum lent í þessu áður og við vitum hvað þarf til til að klára þetta einvígi. Sem fyrr þá getum við þetta ekki einir og nú sem aldrei fyrr þurfum við hjálp frá okkar fólki. �?g veit að það bregst okkur ekki frekar en fyrri daginn.�??

Nýjustu fréttir

Sandra besti sóknarmaður Olís deildar kvenna
Lífríki íslenskra hafna í hættu?
Fimleikafélagið Rán tók þátt í Vormóti Gróttu
Samningi Filip Stuperavic rift við ÍBV
Eyjamenn áhyggjufullir vegna næsta vetrar
Eyjamenn fjölmenntu á samgöngufund Vegagerðarinnar
Ný bæjarstjórn tekur til starfa í dag – fundurinn í beinni
Hvers vegna segja svona margir það sama?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.