Aflaverðmæti eykst um 7,9% á milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 63 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2008 samanborið við 58,5 milljarða á sama tímabili árið 2007.

Aflaverðmæti hefur aukist um 4,6 milljarða eða 7,9% á milli ára. Aflaverðmæti í ágúst nam 8,9 milljörðum miðað við 6,2 milljarða í ágúst 2007.

Aflaverðmæti botnfisks janúar til ágúst 2008 nam 44,4 milljörðum og jókst um 2,6% miðað við sama tímabili árið 2007. Verðmæti þorskafla var 21,2 milljarðar og dróst saman um 1,5% frá fyrra ári.

Nýjustu fréttir

Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Göngustígur kominn að Sjónarhorni Flakkarans
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis
Dýpkuðu 32 þúsund rúmmetra við Landeyjahöfn
Logn og bros á Stórhöfða
Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Skjöldur haldinn í þriðja sinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.