Áform um nýsmíði skipa og nýtt botnfiskvinnsluhús Vinnslustöðvarinnar
7. apríl, 2022

Hafinn er undirbúningur að uppbyggingu nýs húss fyrir botnfiskvinnslu Vinnslustöðvarinnar. Innan fárra vikna liggja fyrir frumhugmyndir að hönnun, skipulagi og sjálfum framkvæmdunum. Gömul hús verða rifin og ný byggð í áföngum svo unnt verði að halda fiskvinnslu gangandi allan tímann.

Þetta kom fram í máli Guðmundar Arnar Gunnarssonar, stjórnarformanns Vinnnslustöðvarinnar, á aðalfundi félagsins í gær. Hann kynnti sömuleiðis áform um nýsmíði skipa sem leysa myndu af hólmi þrjú skip félagsins, Brynjólf, Drangavík og Kap II, til veiða við suðurströndina.

Vilji stjórnar og stjórnenda stendur til þess að nýju skipin verði hönnuð og smíðuð með mikinn orkusparnað í huga og markmið um orkuskipti í sjávarútvegi og græn viðhorf í loftslagsmálum að leiðarljósi. Miðað er við að skipin geti gengið fyrir „græna eldsneytinu“ metanóli. Hins vegar blasir við að breyta þurfi ákvæðum laga um fiskveiðar í landhelginni til að unnt sé að hrinda í framkvæmd þessum áformum um nýsmíðar skipa.

Orðrétt sagði stjórnarformaðurinn um málið á aðalfundinum:

„Mikilvægasti vegvísirinn okkar í stefnumótun vegna þessarar nýsmíði er eigin reynsla af útgerð Breka VE og sú staðreynd að hin hæggenga, stóra skrúfa togarans sparar eldsneytisnotkun á hvert kíló fiskjar í afla um 40-50%. Skrúfa Breka er 4,7 metrar í þvermál en venjuleg stærð skrúfu á togara svipaðrar stærðar er um 3 metrar.

Hvað er þá málið? Liggur ekki bara beint við að láta smíða skip með stórri skrúfu til að veiða við suðurströndina, spara orku í stórum stíl og allir glaðir?

Eðlilegt svar ætti að vera: já, að sjálfsögðu! Raunverulegt svar er hins vegar: NEI, því ákvæði í gildandi lögum um fiskveiðar í landhelgi Íslands koma í veg fyrir að við getum að þessu leyti tekið stjórnvöld landsins á orðinu um orkuskipti í sjávarútvegvegi og stuðlað að því að ná markmiðum um orkusparnað.

Lagaákvæði um svokallaðan aflvísi eru með öðrum hindrun í vegi orkuskipta í sjávarútvegi og grænnar þróunar, það er að segja lögfestar reikniformúlur um vélarafl og þvermál skrúfu fyrir togskip að hámarki 29 eða 42 metrar að lengd til veiða í landhelginni.

Vinnslustöðin minnkaði kolefnisspor í útgerð sinni myndarlega með Breka VE og hyggst halda áfram á sömu braut með endurnýjun skipa til veiða í landhelginni. Til þess að svo megi verða verður Alþingi að breyta tilheyrandi lögum og ég efast reyndar ekki um að löggjafarvaldið bregðist vel við kallinu.

Umhverfisvernd er vissulega mál málanna og ef breyta þarf lögum og regluverki, til að stuðla að umhverfisvænni starfsemi í sjávarútvegi, á ekki að standa á stjórnvöldum landsins og löggjafanum.“

Vinnslustöðin átti áður 48% hlut í útgerðarfélaginu Hugin hf. í Vestmannaeyjum en eignaðist allt félagið á árinu 2021. Þá keypti Vinnslustöðin 75% hlut í fiskvinnslufyrirtækinu Hólmaskeri í Hafnarfirði seint á árinu 2021 og í febrúar í ár keypti dótturfélag Vinnslustöðvarinnar í Þýskalandi lítið fiskvinnslu- og sölufyrirtæki þar, Rheinland. Þannig styrkist markaðsstarfsemin á þessu markaðssvæði, einkum hvað varðar sölu karfa.

  • Rekstur Vinnslustöðvarinnar hf. skilaði hagnaði upp á liðlega 15,1 milljónir evra sem jafngildir liðlega 2,1 milljarði króna. Afkoman árið 2021 er sú besta í sögu félagsins.
  • Rekstrartekjur voru tæplega 137 milljónir evra og jukust um 60 milljónir evra frá fyrra ári eða um 75%. Loðnuveiðar, útgerð Hugins og dótturfélagið Marhólmar skiluðu stærstum hluta aukningarinnar.
  • Aðalfundurinn samþykkti að greiða hluthöfum Vinnslustöðvarinnar 6 milljón evrur í arð, jafnvirði um 850 milljóna króna.

Stjórn Vinnslustöðvarinnar var endurkjörin og varastjórn sömuleiðis. Í stjórn eru Einar Þór Sverrisson, Guðmunda Áslaug Bjarnadóttir, Guðmundur Örn Gunnarsson, Rut Haraldsdóttir og Sigurjón Rúnar Rafnsson.

Í varastjórn eru Eyjólfur Guðjónsson, Herdís Ásu Sæmundardóttir og Sigurhanna Friðþórsdóttir.

Sindri Viðarsson tók ljósmyndirnar á aðalfundinum.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst