Rekstrarhagnaður Eimskips fyrir afskriftir (EBITDA) á fyrstu níu mánuðum ársins er 5,3 milljarðar króna. Sterkur rekstur og góð magnaukning í flutningum einkenna árið en magn jókst um 8% í áætlunarsiglingum félagsins.
Fyrirtækjakaup hafa einkennt árið og m.a. festi félagið kaup á tveimur félögum á fjórða ársfjórðungi. Annars vegar fjárfesti Eimskip í hollenska fyrirtækinu EXTRACO sem sérhæfir sig í þjónustu við innflutningsfyrirtæki á frysti- og kælivörumarkaðnum í Hollandi. Velta Extraco nemur um 2,5 milljörðum króna. Einnig undirritaði Eimskip samninga um kaup á norska flutningafélaginu NOR LINES. Nor Lines er flutningafélag í sambærilegum rekstri og Eimskip og hjá því starfa um 200 manns. Félagið hefur yfir að ráða sjö skipum og 450 vörubifreiðum, ásamt því að hafa aðgang að 60 afgreiðslustöðum við norsku strandlengjuna, þar af 14 í eigin rekstri. Ársvelta Nor Lines er um 13,5 milljarðar króna. Á komandi mánuðum er stefnt að því að endurskipuleggja rekstur Nor Lines. Bæði þessi félög falla vel að rekstri Eimskips og eru þessar fjárfestingar í takt við fjárfestingarstefnu félagsins.
Eimskip skrifaði undir viljayfirlýsingu um samstarf við grænlenska skipafélagið ROYAL ARCTIC LINE í maí á þessu ári. Nú er unnið að því að móta og meta möguleika samstarfsins og má búast við niðurstöðu þeirrar vinnu fyrir áramót.
Meðal annarra breytinga má nefna að félagið tilkynnti að það muni ekki lengur sigla til Hamborgar í �?ýskalandi heldur þess í stað sigla framvegis til Bremerhaven sem er vagga sjávarútvegs í �?ýskalandi.
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskipafélags Íslands
�??Eimskip heldur áfram að skila góðum árangri og þetta er besti þriðji ársfjórðungur í rekstri félagsins frá árinu 2009 hvað varðar rekstrartekjur, EBITDA, EBIT og hagnað.
�?að er líka ánægjulegt að Eimskip hefur styrkt stöðu sína í alþjóðlegri flutningsmiðlun með kaupum á flutningsmiðlunarfyrirtækinu Extraco í Rotterdam og félagið skrifaði jafnframt undir samkomulag um kaup á fyrirtækinu Nor Lines í Noregi. Bæði þessi félög falla vel að rekstri og stefnu Eimskips.
Eimskip og grænlenska skipafélagið Royal Arctic Line undirrituðu í maí viljayfirlýsingu um að móta og meta möguleika á samstarfi um smíði á þremur gámaskipum og um að deila afkastagetu þeirra. Með mögulegu samstarfi mun Grænland tengjast alþjóðlegum siglingakerfum. Vinnan hefur gengið vel á undanförnum vikum og mánuðum og markmiðið er að niðurstaða um samstarfið liggi fyrir í desember.�??
Hér má nálgast fréttatilkynninguna í heild sinni:
https://newsclient.omxgroup.com/cdsPublic/viewDisclosure.action?disclosureId=746487&lang=is
Hér má horfa á beina útsendingu frá fjárfestafundi félagsins á Facebook síðu þess. �?tsendingin hefst kl 8:30 föstudaginn 18. nóvember:
https://www.facebook.com/www.eimskip.is/