Ágúst �?skar Gústafsson læknir: �??Ekki halda stressi til streitu�??
Af hverju finna sífellt fleiri til streitu og álags í okkar daglega lífi og hvernig getum við reynt að sporna gegn því að þetta hafi alvarleg áhrif á okkar andlegu líðan og líkamsstarfsemi? Ágúst �?skar Gústafsson starfar sem heimilislæknir í Kaupmannahöfn. Hann er sérstakur áhugamaður um streitu og hvaða áhrif hún hefur á líkamann.
Hann segist hafa orðið hálf undrandi eftir að hafa verið starfandi sem heimilislæknir í Kaupmannahöfn í nokkurn tíma hversu margir sjúklingar hans glímdu við streitu og fylgikvilla hennar. Meirihluti sjúklinganna sem komu til hans voru með einhvers konar einkenni streitu og álags. Allt frá svefnleysi yfir í óeðlileg svitaköst og kvíða. Ruv.is greindi frá.
�??Fyrsta spurningin sem ég spyr mína sjúklinga að er hversu langt er síðan þeir stunduðu áhugamálið sitt? Ef það stendur á svörum og langt er um liðið þá eru það venjulega fyrstu merki um að fólk þarf að fara hægja á sér,�?? segir Ágúst sem var gestur Helgu Arnardóttur í Heilsuvaktinni í Mannlega þættinum á Rás 1.
Í framhaldi af því opnaði hann Facebook síðu sem ber heitið: Ekki halda stressi til streitu. �?ar deilir hann fróðleik, greinum og fyrirlestrum um áhrif streitu, einkenni hennar og hvernig við getum spornað gegn henni og lifað streitulausu lífi.
Ágúst segir einkenni streitu margskonar. Svefnleysi er eitt þeirra, óreglulegur hjartsláttur, sviti í höndum, óeðlileg og tíð svitaköst og margt fleira. Orsökina megi oft rekja til þess að fólk vinni mikið og þar af leiðandi bitni það á svefninum, það gefi sér lítinn frítíma með fjölskyldu og vinum, hreyfi sig ekki og drekki of mikið af kaffi, orkudrykkjum eða áfengi.
Ágúst segir dönsk sveitarfélög vera orðin meðvituð um áhrif streitu og hvernig hægt sé að hjálpa fólki sem glími við hana. �?ar séu í boði ókeypis námskeið í núvitund og hugleiðslu, hreyfingu, svefnráðgjöf og margt fleira sem lítið sé um á Íslandi.
�??Helstu ráðin sem ég gef fólki sem leitar til mín er að það reyni að passa svefninn sinn og ná reglu á honum. Auk þess er mikilvægt að hreyfa sig eitthvað á hverjum degi því það dregur úr streitu, draga úr drykkju örvandi drykkja eins og kaffi og áfengi. Síðast en ekki síst legg ég mikla áherslu á að fólk gefi sér tíma til að stunda áhugamálin sín hver sem þau eru því þau draga beint úr streitu og það mikilvægasta af öllu er að hitta reglulega fjölskyldu sína og vini því þær stundir gefa fólki mest og lætur því líða betur,�?? segir Ágúst.
Hægt er að hlusta á viðtalið í heild á ruv.is

Nýjustu fréttir

Eyjakonur töpuðu heima gegn Breiðablik
Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
Heimaklettur í allri sinni dýrð – en gönguleiðin bíður enn úrbóta
Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu
Stórleikur á Hásteinsvelli í kvöld
Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.