Allt yfirfullt á Landspítalanum en tóm sjúkrahús um allt land
Stofnar.indd
�??�?að er hreinlega þyngra en tárum taki að ræða heilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum og þar með talið fæðingarþjónustu. �?að er til skammar hvernig ríkið hefur markvisst og grímulaust flutt fjármagn úr kjarnaþjónustu sinni á landsbyggðinni yfir í rekstur Landspítalans og þar með dregið úr þjónustu í Vestmannaeyjum en stóraukið kostnað íbúa.�??
�?etta segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri vegna fréttar á Eyjar.net í dag þar sem segir að á árinu 2014 hafi 57 Eyjamenn komið í heiminn. Aðeins níu af þessum 57 nýburum fæddust þó í Eyjum sökum stöðunnar á Heilbrigðisstofnuninni.
�??�?að er furðuleg hagfræði að telja fjármagni betur verið í að fljúga sjúklingum til Reykjavíkur á víxl við lækna sem hingað koma. Engu er líkara en það komi heilbrigðisyfirvöldum á óvart að fólk í Vestmannaeyjum haldi áfram að slasast og veikjast þótt hér sé dregið úr þjónustu. Að það komi þeim á óvart að heildarkostnaður við bara sjúkraflug hafi verið um 70 milljónir á seinasta árið. Að það sé dýrara og fljúga læknum reglulega til Vestmannaeyja en að hlúa að þeim heilbrigðisstarfsmönnum sem hér búa. Að það sé þrengra um vik á Landspítalanum þegar allt er látið standa tómt í fullbúnum sjúkrahúsum um allt land. �?að er því von á að við Eyjamenn �??rétt eins og fólk víðast í landsbyggðunum- séum ósátt.
Krafa okkar í bæjarstjórn er og mun verða sú að þetta verði bætt. Kröfunni er beint að ríkisstjórn og þingmönnum. �?að er þeirra að verja hagsmuni okkar og þá sérstaklega þegar það snýr að kjarnaþjónustu hins opinbera svo sem samgöngum og heilbrigðismálum,�?? segir Elliði.
Í frétt Eyja.net segir að árið 2013 hafi 66 börn búsett í Eyjum fæðst en ekki nema 35 2012.

Nýjustu fréttir

Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
50 ár frá opnun sundlaugar Vestmannaeyja
Ingunn Ása – Mjög gaman að vera valin í Landsliðið
Fortíð Vestmannaeyja lifnaði við á sýningu Hlyns
Lundaveiði heimiluð þrátt fyrir neikvæða umsögn Náttúrustofu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.