Ally áfram hjá ÍBV
Allison Clark í leik gegn Aftureldingu. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson

Bandaríska knattspyrnukonan Allison Patricia Clark hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild ÍBV út næsta keppnistímabil. Ally eins og hún er kölluð er 24 ára miðjumaður sem getur þó leikið í flest öllum sóknarstöðunum einnig. Á þessari leiktíð hefur Ally verið mögnuð í búningi ÍBV, skorað 13 mörk en einnig komið að öðru 21 marki af þeim 75 sem liðið hefur skorað á tímabilinu í Lengjudeildinni og Mjólkurbikarnum. Greint er frá þessu á vefsíðu ÍBV.

Þar segir einnig að fyrir tímabilið hafi knattspyrnuráð ÍBV fagnað komu Ally til félagsins og óskaði þess að hún gæti hjálpað félaginu að ná markmiðum sínum. Markmiði tímabilsins hefur verið náð með sigri í Lengjudeildinni en knattspyrnuráð fagnar því að Ally vilji halda áfram að spila hjá félaginu og hjálpa liðinu að taka skrefið upp í Bestu deildina.

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.