Alþjóðlegur heilbrigðisdagur gegn þunglyndi
Í Fréttablaðinu í dag er eftirfarandi grein eftir �?ttarr Proppé heilbrigðisráðherra í tilefni alþjóðaheilbrigðisdagsins 7. apríl sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin helgar að þessu sinni þunglyndi. Stofnunin áætlar að yfir 300 milljónir manna eigi við þunglyndi að etja og efnir í ljósi þeirrar alvarlegu stöðu til herferðar gegn þunglyndi sem á að standa í heilt ár.
�??�?unglyndi! Tölum um það.�?? �?etta eru skilaboð Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) á alþjóðaheilbrigðisdeginum 7. apríl sem að þessu sinni er helgaður þunglyndi og hvernig við getum spornað við þunglyndi og bætt aðstæður þeirra sem við það glíma.
�?unglyndi er ein af meginorsökum vanheilsu fólks og örorku um allan heim. WHO áætlar að yfir 300 milljónir manna eigi við þunglyndi að etja og að hlutfall þunglyndra hafi jafnframt hækkað um rúm 18% á árabilinu 2005 �?? 2015. Í ljósi þessarar alvarlegu stöðu hefur WHO ákveðið að efna til herferðar sem standa mun í heilt ár, undir yfirskriftinni: ,,Depression: let´s talk.�??
�?g mæli með því að við gerum eins og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin leggur til. Tölum um þunglyndi, reynum að sporna við þunglyndi og styðjum þá sem þjást af því til að öðlast betra líf með viðeigandi úrræðum og þjónustu.
Hér á landi hefur margt verið gert til að opna umræðuna um þennan illvíga sjúkdóm sem svo lengi var þolendum og aðstendendum þeirra mikið feimnismál. �?að hefur átt sér stað vitundarvakning, sem gerir það að verkum að fólk hefur opnað sig og ræðir nú opinskátt um veikindi sín. Slík umræða eyðir fordómum og opnar jafnframt augu almennings og ráðamanna fyrir því hve mikilvægt er fyrir samfélagið allt að þessi mál séu tekin alvarlega.
Eins og fram kemur í sáttmála ríkisstjórnarinnar og í nýrri fjármálaáætlun hennar er áhersla lögð á að bæta aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu, m.a. með fjölgun sálfræðinga í heilsugæslunni og með aðgerðum til að stytta bið eftir þjónustu göngudeildar Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans.
Við búum að því að eiga þingsályktun um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára sem samþykkt var á Alþingi á liðnu ári. �?ar eru sett skýr markmið og áætlanir sem fylgja þarf fast eftir. Aukin vellíðan, betri geðheilsa landsmanna og virkari samfélagsþátttaka þeirra sem glíma við geðraskanir til skemmri eða lengri tíma, óháð búsetu er meginmarkmið þingsályktunarinnar. Að baki slíkri stefnu eigum við öll að geta staðið heilshugar.
�?ttarr Proppé heilbrigðisráðherra

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.