Ánægðastir allra með búsetuskilyrði sín

Frétt á vef Fréttablaðsins sem birtist í gær var sérstaklega gleðileg. Þar var greint frá því að samkvæmt könnun Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi eru Vestmannaeyingar ánægðastir landsmanna allra með búsetuskilyrði sín.

Markvisst hefur verið unnið að því á kjörtímabilinu að efla þjónustu við íbúa og sérstaklega barnafjölskyldur. Frístundastyrkurinn var tvöfaldaður frá því sem var, gjaldskrá leikskóla, frístundar og fæðiskostnaðar í skólum var fryst og þau gjöld hækkuðu þannig ekki og þjónusta við nemendur í grunn- og leikskólum hefur markvisst verið efld m.a. með snemmtækri íhlutun þannig að allir nemendur geti vaxið og dafnað í skólunum okkar.

Á undanförnum árum hefur að sama skapi verið lögð áhersla á þjónustu við eldra fólk m.a. með hvötum til þess að sá hópur geti búið sem lengst í eigin húsnæði. Þá var farið í verkefni um heilsueflingu eldri borgara sem hefur farið fram úr björtustu vonum bæði hvað varðar þátttöku og árangur. Í þjónustukönnunum hefur ítrekað komið fram að eldra fólk í Vestmannaeyjum er hvað ánægðast landsmanna með þjónustu sveitarfélaga og er það mikið fagnaðarefni.

Á næstu árum þurfum við að halda áfram uppbyggingu fyrir nýsköpunar- og sprotastarfsemi í Fiskiðjunni. Halda áfram að vinna markvisst að umhverfismálum eftir umhverfisstefnunni sem er í vinnslu, halda áfram að veita fólki af erlendu bergi góða þjónustu, treysta stoðir atvinnulífsins með markvissum stuðningi bæjarins t.d. við ferðaþjónustuna og styrkja menningarlífið í bænum.

Með hækkandi sól sjáum við vel hvað samfélagið okkar blómstrar hvert sem litið er. Ég vil halda áfram á þessari braut. Sveitarfélög eiga að veita íbúum sínum góða þjónustu og ég er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð á undanförnum árum.

Til hamingju með hamingjuna Eyjamenn!

Njáll Ragnarsson

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.