Arnór Viðarsson, handknattleiksmaður var í kvöld útnefndur íþróttamaður Vestmannaeyja árið 2023.
Arnór, stóð sig frábærlega á árinu, var lykilmaður í Íslandsmeistaraliði ÍBV. Hann sýndi ótrúlegan þroska í háspennu einvígi í úrslitum Íslandsmótsins. Arnór lék einnig stórt hlutverk með U-21 árs landsliði Íslands á HM en þeir enduðu í 3. sæti mótsins. Arnór er mögnuð fyrirmynd fyrir unga iðkendur og hefur síðustu ár verið að þjálfa yngri flokka ÍBV með frábærum árangri.
Agnes Lilja Styrmisdóttir var útnefnd íþróttamaður æskunnar í yngri flokknum.
Agnes, hefur átt virkilega góðu gengi að fagna á árinu. Hún er einstaklega duglegur leikmaður sem æfir stíft bæði handknattleik og knattspyrnu. Agnes lék landsleiki á þessu ári fyrir U-15 ára landslið kvenna í handbolta gegn Færeyjum. Agnes sýndi þar hvers hún er megnug og skoraði fimm mörk í þessum leikjum. Agnes var einnig á síðasta ári kölluð til æfinga hjá U-16 ára landsliði kvenna í handbolta. Þá hefur Agnes stigið sín fyrstu skref í meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur.
Í eldri flokknum var Elísa Elíasdóttir útnefnd íþróttamaður æskunnar.
Elísa, hefur átt magnað tímabil með meistaraflokk kvenna í handknattleik þar sem hún var lykilmaður hjá deildar og bikarmeisturum. Ekki má gleyma að Elísa og stelpurnar fóru einnig alla leið á íslandsmótinu. Elísa stóð sig frábærlega á EM með U-19 ára landsliðinu. Hún kórónaði svo sitt ár með því að vera valin í lokahóp A-landsliðs kvenna til að taka þátt á HM í Noregi. Elísa er algerlega mögnuð fyrirmynd fyrir unga iðkendur og hefur sýnt ótrúlegan þroska innan sem utan vallar þrátt fyrir ungan aldur.
Heiðursskjöldur
Árið 1994 var byrjað að heiðra einstakling sem með starfi sínu og rækt við íþróttir í Vestmannaeyjum þótti skara fram úr. Í ár hlaut Eyjólfur Guðjónsson skjöldinn.
Gullmerki
Við veitingu gullmerki ÍBV skal tekið mið af því að sá sem veita á merkið hafið áður verið veitt silfurmerki og hafi staðið í forustusveit íþróttamála í Vetstmannaeyjum og unnið þeim vel og dyggilega.
Í ár var tveimur aðilum veitt gullmerki ÍBV og þau eru Ingibjörg Jónsdóttir og Arnar Richardsson.
Silfurmerki
Heiðursmerki ÍBV úr silfri hafa verið veitt frá árinu 1970 þeim einstaklingum sem hafa unnið vel og dyggilega fyrir íþróttahreyfinguna í áratug eða lengur.
Í ár var eftirtöldum einstaklingum veitt slík viðurkenning fyrir óeigingjarnt starf og dygga þjónustu fyrir íþróttahreyfinguna í Eyjum.
Sigríður Inga Kristmannsdóttir, Laufey Grétarsdóttir, Edda Daníelsdóttir, Ólafía Birgisdóttir, Pálmi Harðarssonm, Kristleifur Guðmundsson, Jakob Möller og Sigursveinn Þórðarson.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst