Ársit knattspyrnudeildar komið út

Ársit knattspyrnudeildar ÍBV er komið út fyrir árið 2021, árið var mjög gott hjá ÍBV þar sem karlaliðið tryggði sér sæti í efstu deild á ný með því að enda í 2. sæti Lengjudeildarinnar í sumar.

Hlekkur á ársritið.

Meistaraflokkur kvenna hjá félaginu hélt sæti sínu í efstu deild og vann glæsta sigra á tímabilinu, t.a.m. á móti Breiðabliki í upphafi tímabils.

Ársritið er fullt af skemmtilegum stuttum pistlum og viðtölum við stóra karaktera sem tengjast klúbbnum þar á meðal leikmenn og þjálfara meistaraflokka liðsins. Þá er einnig samantekt yngri flokka auk þess að myndir frá tímabilinu birtast.

Knattspyrnudeild ÍBV vill þakka fyrir allan stuðninginn á árinu og óskar í leiðinni öllum stuðningsmönnum liðsins gleðilegs nýs árs.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.