Ásmundur Friðriksson - "�?akklátur fólkinu sem studdi mig
�??�?g vil byrja á því að þakka öllum sem þátt tóku í prófkjörinu og Eyjamenn sýndu enn og aftur að þeir kunna að bregðast við þegar kallið kemur og standa saman. Mikil þátttaka í Eyjum gefur okkur byr undir báða vængi fyrir komandi kosningar og ég hlakka til að vinna með Páli Magnússyni forystumanni okkar á listanum. Við höfum rætt saman og ég veit að samstarfið verður gott, við höfum þekkst í áratugi og Eyjahjartað slær í okkur báðum. �?g vil þakka þeim sem studdu mig, annað sætið á listanum er góður árangur og ég er afar sátur og þakklátur ykkur öllum,�?? sagði Ásmundur Friðriksson, alþingismaður sem hafnaði í öðru sæti í prófkjör Sjálfstæðisflokksins á laugardaginn.
�?ú barðist fyrir fyrsta til öðru sæti og hafnar í öðru með rétt um helming atkvæða. Er það ekki ásættanleg niðurstaða fyrir þig?
�??�?að er auðvitað mjög góður árangur að ná öðru sætinu á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. �?g er líka að fá góða almenna kosningu og yfir 70% þáttakenda völdu mig í sæti á listanum sem sýnir góða breidd. �?egar ég lít til baka er ég sáttur við þá vinnu sem ég og stuðningsmenn mínir lögðu í prófkjörið.
Við höfðum að leiðarljósi þau verk sem ég hef unnið í þinginu og kjördæminu og gleðina sem var ósvikin allan tíman. �?g og Sigga viljum þakka öllu því góða fólki sem studdi mig og vann langan vinnudag til að ná þessum árangri sem ég hefði aldrei náð nema vegna þeirra. �?g mun halda mínu striki og undirbúningur fyrir næstu kosningar hófst strax á mánudagsmorgun með heimsókn í tvö fyrirtæki áður en ég fór á morgunfundi í þinginu, þingmennska er endalaus vinna ef árangur á að nást og ég mun ekki slá af.�??
Á eigin forsendum
�?ú ferð upp um sæti og sitjandi ráðherra húrrar niður, styrkir það ekki stöðu þína innan flokksins?
�??Í þessu prófkjöri fór ég algjörlega á eigin forsendum, bauð mig fram í 1.til 2. sætið á listanum og náði öðru sætinu. �?að voru 4000 manns, helmingur konur og helmingur karlar sem völdu listann og ég treysti því að það fólk hafi kosið af ábyrgð og við virðum niðurstöðuna. Mín prófkjörsbarátta gekk út á að ræða um mig sem þingmann, hvað ég stæði fyrir og mín störf. Slík vinna skilar árangri nú eins og áður.�??
Listinn verði sigurstranglegur
Áttu von á breytingum á listanum með tilliti til konuleysis?
�??�?egar ég svara þessari spurningu veit ég ekki hvaða stefnu það mál kann að taka. Í prófkjörinu var kosið um verk stjórnmálamanna ekki kyn fólks. �?að er mikilvægt að konur sitji í efstu sætum listans en samkvæmt reglum flokksins er enginn öruggur með sæti sitt sem ekki fær bindandi kosningu.
Bindandi kosning er þegar frambjóðandi fær meira en 50% fylgi í viðkomandi sæti og ég var með tæp 50%. Mikilvægast er að listinn verði skipaður konum og körlum sem ætla að vinna saman sem liðsheild. �?að höfum við Páll rætt saman um og ég veit að það verður mikil breyting frá því sem var og hlakka sannarlega til þess. Fólk hefur almennt áhyggjur af því að breytingar verði en það er mikilvægast í enda dagsins að listinn verði sigurstranglegur og kjósendur í kjördæminu vilji styðja sigurstranglegan lista skipaðan konum, körlum og ungu fólki af báðum kynjum. Við munum standa saman um slíkan lista.�??
Á hvað munt þú leggja áherslu á í komandi kosningabaráttu?
�??Fyrir utan mál er varða stöðuleika í samfélaginu og betra heilbrigðiskerfi fyrir alla þá er ég persónulega með mál eldra fólks á minni könnu. Kjör þeirra eru mér kappsmál og ég vil leggja mig fram í þeim málaflokki eins og ég hef gert lengi. Varðandi Eyjar sérstaklega eru heilbrigðis- og samgöngumálin þau mikilvægustu. Sömu fargöld til Landeyjarhafnar og �?orlákshafnar og fé til rannsókna á höfninni í landeyjum til að tryggja öruggar siglingar þangar allt árið þegar ný ferja verður komin 2018. Heilbrigðisstofnunina í Eyjum þarf að styrkja, auka þjónustu og bæta fæðingarhjálpina og sannarlega verður lögð áherslur á þau mál,�?? sagði Ásmundur að endingu

Nýjustu fréttir

Eyjamenn komu til baka og náðu í stig gegn ÍA
Óskuðu eftir Baldri – fengu neitun
Petar Jokanovic áfram í herbúðum ÍBV
Rjúfum vítahringinn: Hringferð SA í Akóges-salnum
Þakklæti efst í huga
Kvennakórinn heldur vortónleika
Mikilvæg stig í húfi þegar ÍBV mætir ÍA
Fyrsta tap ÍBV í sumar kom gegn FH
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.