Vefsíðan audlindinokkar.is hefur verið opnuð. Þar má finna upplýsingar og gögn sem tengjast verkefninu Auðlindin okkar sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ýtti úr vör í maí með skipan fjögurra starfshópa og samstarfsnefndar um sjávarútvegsstefnu. Verkefni hópanna Samfélag, Aðgengi, Umgengni og Tækifæri er að greina áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum ásamt því að meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins.
Á síðunni má finna upplýsingar um upplegg og tilgang verkefnisins, skipan starfshópa og samráðsnefndar. Einnig er að finna á síðunni yfirgripsmikið gagnasafn um sjávarútveg. Þar má nálgast gögn og fundargerðir starfshópa og samráðsnefndar, ásamt lögum, dómum, frumvörpum, álitum og úrskurðum. Jafnframt er þar að finna yfirlit yfir þá hagaðila sem starfshóparnir hafa rætt við.
Í verkefninu Auðlindin okkar er lögð áhersla á opna, þverfaglega og gagnsæja nálgun. Því eru allir þeir sem áhuga hafa hvattir til að hafa samband í gegnum síðuna eða netfangið audlindinokkar@mar.is til að koma skoðunum, upplýsingum eða spurningum á framfæri.
Vinna starfshópa og samstarfsnefndar hófst í júní og gert er ráð fyrir að endanleg afurð þeirra vinnu líti ljós sem frumvörp til Alþingis vorið 2024.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.